fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Átta ára drengur myrtur og brenndur – Stjúpmóðirin ákærð

Pressan
Laugardaginn 21. mars 2026 15:30

Fabian var myrtur á hrottalegan hátt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hún hélt því fram að hún hefði fundið lík fyrrum stjúpsonar síns fyrir algjöra tilviljun þegar hún var að viðra hundinn sinn. En lögreglan í þýska ríkinu Mecklenburg-Vorpommen hafði allt frá upphafi varann á sér varðandi konuna og frásögn hennar.

Hún er 29 ára og er aðeins nefnd G í þýskum fjölmiðlum.

Meðal þess sem lögreglan undraðist var að konan fann líkið  á afskekktum stað sem hún fór aldrei með hundinn á.

Bild segir að saksóknarar í Rostock hafi nú gefið út ákæru á hendur konunni fyrir að hafa myrt litla drenginn, Fabian, af yfirlögðu ráði. Hann var stunginn sex hnífsstungum í efri hluta líkamans.

Það sást síðast til hans við heimili móður sinnar í bænum Gustrow að morgni 10. október síðastliðins. G lokkaði hann út og myrti hann síðan.

Lögreglan telur að G hafi myrt hann fljótlega eftir að hún lokkaði hann að heiman. Lík hans fannst síðan fjórum dögum síðar nokkrum kílómetrum frá heimili hans. Eldur hafði verið borinn að líkinu.

G var eitt sinn unnusta föður Fabians. Hún á sjálf dreng sem er ári yngri en Fabian.

Lögreglan telur að hún hafi borið eld að líki hans skömmu eftir að hún stakk hann til bana. Fjórum dögum síðar lét hún sem hún hefði fundið líkið fyrir algjöra tilviljun þegar hún var að viðra hundinn sinn.

Réttað verður yfir G síðar á árinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana