fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Pressan

13 tíma flugferð með lík um borð – Farþegar kvörtuðu undan lykt

Pressan
Þriðjudaginn 24. mars 2026 07:30

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andlát um borð í flugvél í 35.000 feta hæð breytti langflugi í það sem sumir kalla martröð í háloftunum.

Kona á sextugsaldri lést á fyrsta klukkutíma flugs British Airways frá Hong Kong til London og í stað þess að snúa vélinni við hélt hún áfram á áfangastað á Heathrow flugvöll. Lík konunnar var geymt í upphituðum eldhúskrók í meira en 13 klukkustundir, samkvæmt breskum miðlum.

Heimildarmenn segja að ákvörðunin að halda fluginu áfram endurspegli þann dapurlega veruleika að þegar farþegi deyr um borð er „ekki litið á slíkt sem neyðarástand“.

„Margir vildu snúa aftur til Hong Kong. En, til að segja það hreint út, ef farþegi er látinn, þá er það ekki talið neyðarástand.“

Áhafnarmeðlimir voru í vafa um hvað ætti að gera við líkið í fluginu. Heimildarmaður sagði við The Sun: „Augljóslega var fjölskylda konunnar miður sín, og áhöfnin líka.“

Tillaga um að setja hina látnu inn á salerni vélarinnar gekk ekki upp þannig að áhöfnin neyddist til þess að vefja utan um líkið og flytja það í aftara eldhúsið, án þess að gera sér grein fyrir að svæðið er með upphitað gólf, sem að sögn gerði aðstæður mun verri eftir því sem klukkustundirnar liðu í fluginu.

Þegar vélin, Airbus A350-1000, hóf lendingu tóku farþegar og áhöfn eftir ólykt sem lagði upp úr afturhluta flugvélarinnar. Raunum farþeganna lauk ekki við lendingu. Lögreglan tók á móti flugvélinni á Heathrow og fyrirskipaði öllum 331 farþegum að sitja kyrr í um það bil 45 mínútur á meðan yfirvöld rannsökuðu dauðsfallið um borð.

Engar formlegar kvartanir munu hafa borist til British Airways vegna málsins, en einhverjir áhafnarmeðlima munu hafa tekið sér frí til að jafna sig á atvikinu.

Í yfirlýsingu sagði British Airways til breskra fjölmiðla komfram að „öllum verklagsreglum hefði verið fylgt rétt“ og bent á að engin ein lausn væri til um hvernig hægt væri að takast á við andlát í flugi. „Hugur okkar er hjá vinum og fjölskyldu konunnar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Öryggismálasérfræðingur segir að heimsbyggðin þurfi að búa sig undir óhugsandi martröð

Öryggismálasérfræðingur segir að heimsbyggðin þurfi að búa sig undir óhugsandi martröð
Pressan
Í gær

Þessi merki um D-vítamínskort geta sést á húðinni og fótunum

Þessi merki um D-vítamínskort geta sést á húðinni og fótunum
Pressan
Í gær

Með biblíuna undir handleggnum ætla Demókratar að gera það ómögulega í Texas

Með biblíuna undir handleggnum ætla Demókratar að gera það ómögulega í Texas
Pressan
Í gær

98% kvenna finnst karlar með þetta áhugamál vera þeir mest aðlaðandi

98% kvenna finnst karlar með þetta áhugamál vera þeir mest aðlaðandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Karen komst að leyndarmáli kærastans – Það kostaði hana lífið

Karen komst að leyndarmáli kærastans – Það kostaði hana lífið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna áttu ekki að drekka vatn áður en þú ferð í háttinn

Þess vegna áttu ekki að drekka vatn áður en þú ferð í háttinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur

Þetta gerist í heilanum ef þú hvílir snjallsímann í tvær vikur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta áttu aldrei að spyrja gervigreind um

Þetta áttu aldrei að spyrja gervigreind um