fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
433Sport

Reglum breytt á dögunum – Sá fyrsti ákærður og á yfir höfði sér þunga refsingu

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 23. mars 2026 22:00

Wembley. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fótboltaaðdáandi á yfir höfði sér fimm ára bann frá leikvöngum og 1.000 punda sekt eftir að hafa orðið fyrstur til að vera ákærður fyrir svokallað „tailgating“.

Benjamin Bailey, 27 ára frá Oldham, var handtekinn á Wembley fyrir úrslitaleik Manchester City og Arsenal í deildabikarnum. Hann er sakaður um að hafa farið inn á leikvanginn án miða með því að ganga á eftir öðrum í gegnum hliðin.

„Tailgating“ var nýlega gert refsivert og snýst um að nýta sér aðgang annarra til að komast inn á leik án þess að vera með gilt aðgöngumiða.

Bailey var handtekinn fyrir leikinn og ákærður sama kvöld. Hann á að mæta fyrir dóm 1. maí. Tveir aðrir menn hafa einnig verið handteknir vegna sama brots og eru enn í haldi lögreglu.

Lögreglan í London greindi frá því að alls hefðu 20 handtökur verið gerðar í tengslum við leikinn, sem er veruleg fækkun frá árinu áður þegar 91 var handtekinn.

Handtökurnar tengdust meðal annars slagsmálum, árás á neyðarstarfsmann og kynþáttaníði. Þá var annar maður handtekinn fyrir grun um „tailgating“ á leik Tottenham og Nottingham Forest og hefur hann verið látinn laus gegn tryggingu meðan rannsókn málsins stendur yfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Í gær

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Grátlegt fyrir Heimi og félaga
433Sport
Í gær

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah