fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
Pressan

Ungi maðurinn sem hvarf í Barcelona fannst látinn

Pressan
Föstudaginn 20. mars 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lík tvítugs bandarísks háskólanema sem hafði verið saknað í Barcelona á Spáni fannst í sjónum undan ströndum borgarinnar í gær. Þetta staðfesti svæðislögreglan í Katalóníu í samtali við AP.

DV greindi frá málinu í gær en hinn látni hét James „Jimmy“ Gracey og var nemandi við University of Alabama. Hann var í heimsókn hjá vinum í borginni í tengslum við vorfrí (e. spring break) þegar hann hvarf aðfaranótt þriðjudags eftir að hafa heimsótt skemmtistað með vinum sínum. Vinirnir héldu heim á undan honum en Jimmy varð eftir.

Sjá einnig: Dularfullt hvarf ungs manns í Barcelona – Hvað gerðist?

Á eftirlitsmyndavélum sást þegar hann yfirgaf umræddan næturklúbb ásamt óþekktum aðila. Lögregla hefur gefið til kynna að hugsanlega hafi eitthvað saknæmt átt sér stað.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu fannst lík hans nálægt þeim stað þar sem hann sást síðast. Rannsókn á dánarorsök stendur yfir og er vonast til þess að krufning varpi ljósi á hvað gerðist.

Í yfirlýsingu sem fjölskylda hans sendi frá sér í gærkvöldi kemur fram að hún sé harmi slegin vegna málsins. Þar segir að jimmy hafi verið afar elskaður sonur, bróðir og vinur.

Frænka hans lýsti honum í viðtali sem duglegum og metnaðarfullum námsmanni, sem hafi meðal annars verið í heiðursnámi við háskólann og gegnt trúnaðarhlutverki innan stúdentafélags síns. Hún sagði hann einnig hafa verið fyrirmynd yngri ættingja.

Samkvæmt fjölskyldunni hafði Gracey ferðast frá Alabama til Evrópu nokkrum dögum áður, eytt helgi í Amsterdam og komið til Barcelona á mánudag. Faðir hans hefur dvalið í borginni undanfarna daga og unnið með lögreglu við rannsókn málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“
Pressan
Í gær

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn á Suður-Tenerife skelfingu lostnir eftir að maður ógnaði þeim með byssu

Ferðamenn á Suður-Tenerife skelfingu lostnir eftir að maður ógnaði þeim með byssu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Háttsettur embættismaður segir af sér og segir að Trump hafi verið plataður í stríð – „Þetta var lygi“

Háttsettur embættismaður segir af sér og segir að Trump hafi verið plataður í stríð – „Þetta var lygi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Heilahimnubólga veldur ótta í háskólabæ – Tveir látnir og ellefu alvarlega veikir

Heilahimnubólga veldur ótta í háskólabæ – Tveir látnir og ellefu alvarlega veikir