Donald Trump Bandaríkjaforseti treystir ekki því sem hann les. Hann vill frekar fá sínar upplýsingar frá ljósvakamiðlum, þá helst Fox-fréttastofunni. Þetta veit yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, Tulsi Gabbard, en samkvæmt NBC-fréttastofunni er Gabbard nú að leita leiða til að gera fundi leyniþjónustunnar með forsetanum meira spennandi.
Leyniþjónustan fundar reglulega með forsetanum til að upplýsa hann um mikilvæg mál. Trump mun þó leiðast þessi fundi og auk þess hefur hann engan áhuga á að lesa allt það efni sem leyniþjónustan sendir honum. Fimm heimildarmenn NBC segja að Gabbard sé nú að gera yfirhalningu á þessum fundum. Þeir eigi að vera meira í anda útsendinga FOX-fréttastofunnar og eins er hún að íhuga að láta útbúa teiknimyndir og sjónrænar kynningar með sprengjum og látum. Þannig verði Trump vonandi spenntari fyrir þessum fundum en til þessa hefur hann aðeins sest niður 14 sinnum með leyniþjónustunni, mun sjaldnar en forverar hans í starfi. Gabbard mun jafnvel hafa íhugað að ráða inn til sín framleiðanda beint frá FOX, jafnvel fréttamann líka, til að sjá um þessar kynningar.
Gabbard telur að Trump vantreysti almennt leyniþjónustunni og að hann hafi auk þess lítinn áhuga á lestri. Því gætu spennandi kynningar aukið áhuga hans og traust til leyniþjónustunnar.
„Vandinn með Trump er að hann les ekki,“ segir einn heimildarmaður. „Hann horfir bara á línulega dagskrá.“
NBC leitaði eftir staðfestingu á því sem að framan greinir hjá leyniþjónustunni en samskiptastjóri leyniþjónustunnar, Olivia Coleman, vísaði fréttinni alfarið á bug. „Þessi svokallaða fréttamennska er hlægileg, galin og beinlínis röng. Í sönnum falsfréttastíl hefur NBC birt enn eina falsfréttina sem byggir á frásögn nafnlausra heimildarmanna.“