Það var þann 9. apríl síðastliðinn sem hinn tvítugi einkaþjálfari var að skutla vinkonu sinni heim í borginni Newcastle. Mazyar stöðvaði bifreiðina, BMW X5, en um það leyti sem lögregluþjónn kom að bifreiðinni gaf Mazyar allt í botn og ók í burtu.
Lögregla hóf eftirför og fór svo að fleiri lögreglubílar voru kallaðir til. Í frétt Guardian er þess getið að Mazyar hafi ekki einu sinni verið kominn með bílpróf því hann hafði aðeins farið í þrjá ökutíma og þar að auki var bifreiðin ekki tryggð.
Mazyar ók á ríflega 150 kílómetra hraða en ekki vildi betur til en svo að fimm lögreglubílar lentu í árekstri á A1-hraðbrautinni í Newcastle. Sjö lögregluþjónar voru fluttir á slysadeild með mismunandi alvarleg meiðsl. Þrír eru komnir aftur til vinnu en fjórir eru enn fjarverandi.
Útlit er fyrir að Mazyar fari ekki á annað stefnumót með vinkonu sinni því hún sagði fyrir dómi að hún hefði ítrekað beðið hann um að stöðva bifreiðina. Óttaðist hún að eftirförin myndi enda með stórslysi sem hún og gerði.
Mazyar hefur nú verið dæmdur í 14 mánaða fangelsi og var dómarinn í málinu ómyrkur í máli þegar hann kvað upp dóm sinn. „Þú hefðir ekki átt að vera nálægt þessum bíl, eða nokkrum öðrum þetta kvöld.“