Í umfjöllun bandarískra fjölmiðla kemur fram að Mohamed hafi komið til Bandaríkjanna í forsetatíð Joe Biden fyrir nokkrum árum og fengið atvinnuleyfi. Hann yfirgaf landið hins vegar ekki þegar það rann úr gildi og var því ólöglegur í Bandaríkjunum.
Þetta hefur hleypt illu blóði í þá sem vilja að harðar verði tekið á innflytjendamálum vestan hafs. Þingmaðurinn Brandon Gill bendir á að Mohamed hafi komið til Bandaríkjanna með svokallaðri B1/B2-vegabréfsáritun.
„Hann dvaldi lengur en hann hafði leyfi til þannig að Biden lét hann fá atvinnuleyfi. Það rann svo úr gildi áður en hann réðst með fólskulegum hætti að bandarískum gyðingum” sagði Gill.
Sex einstaklingar á aldrinum 67 til 88 ára voru fluttir með brunasár á slysadeild, en í þeim hópi er til dæmis einstaklingur sem lifði helförina af. Þá er háskólaprófessor á meðal þeirra sem slösuðust. Talið er að minnst einn sé lífshættulega slsaður.
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, rannsakar málið sem hryðjuverk en Mohamed mun hafa hrópað slagorð til stuðnings Palestínu áður en hann lét til skarar skríða.
Myndbönd af Mohamed hafa birst víða á netinu þar sem hann sést vera ber að ofan og með bensínsprengjur í höndunum. Kallaði hann eftir því að „síonistum yrði útrýmt og þeir væru allir hryðjuverkamenn. „Hversu mörg börn hafið þið drepið?“ sagði hann meðal annars.