fbpx
Miðvikudagur 04.júní 2025
Pressan

Hann var unglingahryðjuverkamaður og þeim fer fjölgandi

Pressan
Mánudaginn 2. júní 2025 07:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áður var sjaldgæft að börn og unglingar kæmu fyrir í tölfræðinni hjá saksóknurum en í dag eru hinir svokölluðu „TikTok-hryðjverkamenn“ nánast frekar orðnir regla en undantekning. Ljóst er að Evrópa stendur frammi fyrir alvarlegu vandamáli.

Pilturinn er aðeins 14 ára og ætti að vera í skóla en þess í stað var hann handtekinn í stórri lögregluaðgerð anýleg, grunaður um að vera hryðjuverkamaður. Hann og þýskir vinir hans, einnig á unglingsaldri, voru með stórar aðgerðir í huga. Þeir ætluðu að ráðast á hús þar sem hælisleitendur búa.

Þeir höfðu gengið til liðs við þýska nýnasistahópinn „Síðasta varnarlínan“ sem segist vilja „verja þýsku þjóðina.

Fyrrgreindur hópur unglingspilta var stofnaður á síðasta ári og eru félagarnir í honum allir á unglingsaldri. Þeir spjalla saman á spjallrásum öfgasinna og yfirvöld hafa miklar áhyggjur af þróun mála.

Þetta er hluti af óhugnanlegri þróun í Evrópu þar sem hryðjuverkamenn verða sífellt yngri.

Peter Neumann, prófessor í öryggisfræðum við King‘s College í Lundúnum, tók saman fjölda ákærðra íslamskra öfgasinna í Evrópu 10 mánuðum eftir að stríðið á Gasa hófst, brá honum mjög. 58 höfðu verið ákærðir og þar af var þriðjungurinn á aldrinum 13 til 19 ára.

Hann kallar þetta „TikTok-vígamenn“ í rannsókn sem hann gerði en í henni fjallar hann um hversu hratt þessi ungmenni hneigjast til öfgahyggju. Þetta fer fram á samfélagsmiðlum á borð við TikTok og Instagram.

Í Bretlandi er nær fimmtungur allra, sem eru grunaðir um hryðjuverkastarfsemi, yngri en 18 ára.

Wall Street Journal segir að í þriðjungi allra hryðjuverkamála í Belgíu frá 2022 til 2024 hafi börn og ungmenni komið við sögu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Hörmung í háloftunum – Farþegi reyndi að draga flugfreyju með sér

Hörmung í háloftunum – Farþegi reyndi að draga flugfreyju með sér
Pressan
Fyrir 3 dögum

Elon Musk sagður hafa verið á kafi í neyslu lyfja og fíkniefna í kosningabaráttu Trump

Elon Musk sagður hafa verið á kafi í neyslu lyfja og fíkniefna í kosningabaráttu Trump