Eldgos hófst í einu virkasta eldfjalli heims, Etnu á Sikiley, í morgun. Ferðamenn sem voru í nágrenninu áttu fótum sínum fjör að launa þegar gríðarháir öskustrókar risu til himins.
Aðeins er ár liðið síðan Etna gaus síðast en fjallið stendur á mörkum Afríku- og Evrasíuflekans sem veldur tíðum gosum.
Í fréttum ítalskra fjölmiðla kemur fram að Etna hafi sýnt merki um óeðlilega virkni nokkrum klukkustundum áður en gosið hófst. Hraunflæði virðist sem betur fer ekki hafa farið að þekktum gönguleiðum í nágrenni fjallsins og ekki hafa borist fregnir af slysum á fólki.