fbpx
Mánudagur 02.júní 2025
Pressan

Læknir segir að þegar fólk hafi stundað munnmök með þessum fjölda fólks, þá aukist líkurnar á krabbameini

Pressan
Laugardaginn 31. maí 2025 21:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hver er talan? Þetta er kannski ekki mest kynæsandi umræðuefnið en þegar munngælur og krabbamein koma fyrir í sömu setningunni, þá leggja flestir við eyrun og það ekki að ástæðulausu. Breskur læknir segir að þegar ákveðnum fjölda rekkjunauta, sem munnmök eru stunduð með, er náð, aukist líkurnar á að fá krabbamein í háls mikið.

Þetta snýst um blöndu af HPV, tölfræði og hegðunarstaðreyndum.

The Mesothelioma Centre segir að rúmlega 54.000 Bandaríkjamenn muni greinast með krabbamein í munni eða hálsi á lífsleiðinni og að það séu tvöfalt meiri líkur á að karla fái slíkt krabbamein en konur. Hinir hefðbundnu áhættuþættir á borð við reykingar og áfengisneyslu koma auðvitað við sögu en nýjasta illmennið á þessu sviði er HPV.

HPV, human papillomavirus, er ekki bara einhver ein veira. Þetta er hópur rúmlega 100 mismunandi veira. Flestir smitast af HPV á lífsleiðinni en sem betur fer, þá sér líkaminn yfirleitt sjálfur um að losa fólk við veiruna. En sumir eru ekki svo heppnir og í versta falli getur þetta valdið krabbameini. Sérstaklega ef veiran nær að hreiðra um sig í slímhimnum í of langan tíma.

Hisham Mehanna, læknir og prófessor við Birmingham háskóla, deildi vitneskju sinni um þetta í The Conversation og skýrði frá tölunni sem skiptir miklu máli. Hún er sex.

Hann segir að þú hefur stundað munnmök með sex eða fleiri bólfélögum á lífsleiðinni, þá aukist líkurnar á krabbameini í hálsi mjög og séu 8,5 sinnum meiri en hjá þeim sem hafa alls ekki stundað munnmök. Sex rekkjunautar er kannski ekki svimandi há tala á þessum Tinder-tímum sem við lifum á en það er samt ekki úr vegi að hafa þetta í huga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fimm „hollar“ morgunrútínur sem þú getur lagt á hilluna – Þrjár sem þú ættir að taka upp í staðinn

Fimm „hollar“ morgunrútínur sem þú getur lagt á hilluna – Þrjár sem þú ættir að taka upp í staðinn
Pressan
Í gær

Færð þú uppþembu eftir að hafa borðað? Læknir segir þetta bestu leiðina til að sleppa við það

Færð þú uppþembu eftir að hafa borðað? Læknir segir þetta bestu leiðina til að sleppa við það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún hvarf fyrir áratugum – Kennsl borin á beinagrindarleifar sem sendar voru lögreglu í pósti

Hún hvarf fyrir áratugum – Kennsl borin á beinagrindarleifar sem sendar voru lögreglu í pósti
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tók Uber og tróð í sig súkkulaði á heimleiðinni – Áttaði sig á mistökunum þegar hún vaknaði kófsveitt

Tók Uber og tróð í sig súkkulaði á heimleiðinni – Áttaði sig á mistökunum þegar hún vaknaði kófsveitt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fornleifafundur sagður varpa nýju og óvæntu ljósi á uppruna fótboltans – Nágrannar bítast um hnossið

Fornleifafundur sagður varpa nýju og óvæntu ljósi á uppruna fótboltans – Nágrannar bítast um hnossið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Matarbloggari fær á baukinn fyrir uppátæki sitt – „Nei, nú fórstu yfir strikið“

Matarbloggari fær á baukinn fyrir uppátæki sitt – „Nei, nú fórstu yfir strikið“