fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
Pressan

Musk segir skilið við DOGE í skugga þungra ásakana – Mætti með glóðarauga í Hvíta húsið

Pressan
Föstudaginn 30. maí 2025 21:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ævintýri Elon Musk með bandarísku ríkisstjórninni er á enda, svona formlega að minnsta kosti. Hann hefur ákveðið að stíga út úr niðurskurðardeildinni DOGE sem Bandaríkjaforseti, Donald Trump, stofnaði að hans undirlagi.

Trump hélt blaðamannafund í Hvíta húsinu í dag þar sem hann þakkaði Elon Musk fyrir störf sín. Starfslok Musk falla þó í skuggann af fréttum sem hafa tröllriðið bandarískum fjölmiðlum í dag um meinta vímuefnaneyslu auðkýfingsins. Fremst í fylkingu fór The New York Times sem segir að fíkniefnaneysla Musk sé gífurleg. Í frétt miðilsins segir:

„Hann sagði fólki að hann væri að taka inn svo mikið ketamín, sem er öflugt deyfilyf, að það væri farið að hafa áhrif á blöðruna hans sem er þekkt afleiðing ofnotkunar. Hann tók inn alsælu og ofskynjunarsveppi. Hann ferðaðist um með lyfjabox með um 20 pillum, þar með taldar töflur sem virtust vera örvandi lyfið Adderrall samkvæmt mynd af boxinu og því fólki sem hefur séð það.“

Miðillinn segir að margt bendi til þess að Musk hafi verið í neyslu á meðan hann aðstoðaði Trump í kosningabaráttunni, mögulega líka eftir að Trump tók við embætti, en Musk hefur setið marga fundi með erlendum þjóðhöfðingjum og eins staðið fyrir gífurlegum niðurskurði í opinberum rekstri þar sem fjöldi fólks missti vinnuna.

Embætti forsetans vildi engu svara um hvort Musk hafi verið látinn gangast undir fíkniefnapróf í störfum sínum fyrir hið opinbera. Eins leggur eitt af stærstu fyrirtækjum Musk, SpaceX, blátt bann við fíkniefnaneyslu og þurfa starfsmenn að vera tilbúnir að gangast undir fíkniefnapróf.

Musk sagði þó á blaðamannafundinum í kvöld að The New York Times væri miðill sem væri þekktur fyrir lygar. Hann greip fram í fyrir blaðamanni sem vildi ræða þessar fréttir og bað um nýja spurningu.

The Times segir að fólk í innsta hring Musk hafi verið komið með áhyggjur af honum í kosningarbaráttunni. Hann væri vanstilltur, óútreiknanlegur og með barneignir á heilanum. Vinir hans hafi lýst yfir áhyggjum af honum daginn sem Trump tók við embætti en þeim þótti Musk vera algjörlega óheflaður, sem hafi meðal annars endurspeglast í meintri nasistakveðju auðkýfingsins sem vakti gífurlega athygli.

Það vakti svo líka athygli í dag að Musk virtist vera með glóðarauga þegar hann mætti á blaðamannafundinn. Musk útskýrði að hann hefði verið að leika við 5 ára son sinn.

„Ég sagði: Gjörðu svo vel, kýldu mig í andlitið. Og hann gerði það.“

USA Today skrifar: „Elon Musk kom til Washington með miklar væntingar. Hann fór svo með bókstaflegt og orðsporslegt glóðarauga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Telja að morðinginn líti svona út í dag

Telja að morðinginn líti svona út í dag
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fornleifafundur sagður varpa nýju og óvæntu ljósi á uppruna fótboltans – Nágrannar bítast um hnossið

Fornleifafundur sagður varpa nýju og óvæntu ljósi á uppruna fótboltans – Nágrannar bítast um hnossið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kona sem ætlaði að fljúga til Berlínar endaði í allt öðru landi

Kona sem ætlaði að fljúga til Berlínar endaði í allt öðru landi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Unglingur dæmdur í fangelsi fyrir að hafa myrt sjö barna föður í Cardiff

Unglingur dæmdur í fangelsi fyrir að hafa myrt sjö barna föður í Cardiff
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leikkona vonast til að endurlífga 13 ára son sinn sem lést á föstudag – Er í kapphlaupi við tímann

Leikkona vonast til að endurlífga 13 ára son sinn sem lést á föstudag – Er í kapphlaupi við tímann
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sextug kona í dái eftir að innbrotsþjófur braust inn á heimili milljarðamærings

Sextug kona í dái eftir að innbrotsþjófur braust inn á heimili milljarðamærings