Um helgina var greint frá því að kærunefnd Útlendingamála hefði synjað beiðni hins unga Oscar Anders Bocanegra Florez um að umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði tekin fyrir að nýju. Hinn 17 ára gamli Oscar þarf því að yfirgefa Ísland í byrjun júní og sætir endurkomubanni í tvö ár.
Mál Oscars hefur vakið mikla athygli hér á landi því Oscar á hér íslenska fósturforeldra sem hafa barist fyrir því að fá að halda honum, en að sögn þeirra bíður Oscars ekkert úti í Kólumbíu annað en gatan, en sú varð raunin þegar Oscar var vísað úr landi ásamt föður sínum á síðasta ári. Faðirinn, sem mun hafa beitt Oscar ofbeldi, yfirgaf unglinginn á flugvellinum í Kólumbíu og vildi ekkert af honum vita. Oscar endaði á götunni og dvaldist í neyðarskýlum þar sem íslenskur fósturfaðir hans, Svavar Jóhannsson, sótti hann í nóvember. Svavar og eiginkona hans, Sonja, segjast líta á Oscar sem sitt eigið barn og hafa barist fyrir því að fá að halda honum, enda telja þau að líf Oscars væri í hættu ef hann verður sendur aftur til Kólumbíu.
Margir hafa gagnrýnt íslensk stjórnvöld fyrir framgönguna í málinu enda sé hér um að ræða ólögráða barn sem þar að auki eigi sér íslenska velgjörðarmenn sem eru tilbúnir að taka við forsjá hans og uppihaldi.
Útlendingastofnun hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Þar segir að stjórnvöld hafi skoðað umsókn Oscars efnislega, þó að öðru hafi verið haldið fram í umræðunni. Útlendingastofnun hafi metið það svo að þó að Oscar sé nú fylgdarlaust barn þá breyti það ekki fyrri ákvörðun stofnunarinnar um að synja honum um alþjóðlega vernd – enda uppfylli hann ekki skilyrði fyrir vernd. Ekki sé deilt um aðstæður Oscars í Kólumbíu séu erfiðar, en Útlendingastofnun meti það þó ekki svo að hann eigi á hættu ofsóknir eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Eins verði að taka tillit til þess að foreldrar Oscars séu enn með forsjá hans og þau eru nú í Kólumbíu.
Sjá einnig: Sindri undrast hörku yfirvalda í garð Oscars – „Þá er þetta bara skrýtið“
„Vegna umræðunnar í kjölfar úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli fylgdarlauss drengs frá Kólumbíu vill Útlendingastofnun koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri.
Það er ekki rétt að umsókn drengsins um vernd hafi aldrei verið skoðuð efnislega af stjórnvöldum. Málsástæður hans voru metnar á sjálfstæðan hátt þegar hann var hér á landi ásamt föður sínum og systrum, í samræmi við reglur laga um útlendinga og að teknu tilliti til ákvæða barnaverndarlaga og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna.
Þegar drengurinn sótti síðar um vernd sem fylgdarlaust barn var staða hans vissulega önnur en áður. Eftir rannsókn Útlendingastofnunar var niðurstaðan að sú breyting væri þó ekki þess eðlis að hún breytti fyrri ákvörðun stofnunarinnar um að synja umsókn hans um alþjóðlega vernd. Endurtekinni umsókn hans var því vísað frá.
Kærunefnd útlendingamála hefur nú staðfest þessa niðurstöðu og úrskurðað að drengurinn uppfylli ekki skilyrði laga til að fá alþjóðlega vernd.
Skilyrði fyrir alþjóðlegri vernd
Það er mikilvægt að taka fram að ekki er deilt um það að aðstæður drengsins í heimalandi séu erfiðar. Engu að síður er ekki fallist á að hann eigi á hættu ofsóknir eða ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í heimalandi en það eru skilyrðin sem þarf að uppfylla til að fá alþjóðlega vernd. Einnig var ekki talið að hann uppfyllti skilyrði fyrir dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna.
Þessi niðurstaða er fengin á grundvelli þeirra gagna sem voru lögð fram í málinu og mati á aðstæðum í Kólumbíu.
Barnaverndaryfirvöld taka við máli
Þegar um heimfylgd fylgdarlausra barna er að ræða er vandað til verka til að tryggja að tekið sé á móti þeim með viðeigandi hætti. Íslensk barnaverndaryfirvöld bera ábyrgð á að tryggja hagsmuni drengsins á meðan hann er staddur hér á landi og barnaverndaryfirvöld í Kólumbíu munu taka við ábyrgð á máli hans eftir að hann kemur þangað til lands.
Það er mikilvægt að hafa í huga að þótt drengurinn segist vilja dvelja hér á landi og hér á landi sé fjölskylda sem vilji sjá um hann, þá á hann foreldra í heimalandi. Hvorki íslensk né kólumbísk barnaverndaryfirvöld hafa svipt þau forsjá.
Að lokum er rétt að taka fram að það er eðlilega þungbært að fá aðra niðurstöðu í máli sínu en vonir stóðu til. Þegar endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi liggur fyrir þarf því að hafa hugfast að það getur gert viðkvæma stöðu barns enn erfiðari að ýtt sé undir væntingar sem ekki verða uppfylltar.“