fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Pressan

Reiði á Ítalíu eftir óhugnanlegt nauðgunarmál – Ráðherra vill láta gelda mennina

Pressan
Miðvikudaginn 26. nóvember 2025 17:30

Matteo Salvini. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil reiði ríkir á Ítalíu eftir að ungri konu var nauðgað í almenningsgarði í Róm á meðan kærasti hennar var látinn horfa á. Þrír menn, ungir innflytjendur frá Norður-Afríku, eru í haldi lögreglu vegna málsins en talið er að mennirnir hafi verið fimm í það heila.

Parið var í bifreið sinni í Tor Tre Teste-garðinum í austurhluta borgarinnar þegar mennirnir komu aðvífandi. Brutu þeir rúðu í bifreiðinni með flösku og drógu parið út.

Var manninum haldið niðri á meðan annar úr hópnum dró konuna út úr bílnum og nauðgaði henni fyrir framan manninn. Mennirnir flúðu af vettvangi í kjölfarið, en parið leitaði sér aðstoðar á næsta spítala.

Konan sem varð fyrir árásinni er sögð vera 18 ára en maðurinn 24 ára.

Matteo Salvini, innviða- og varaforsætisráðherra Ítalíu og formaður Norðurbandalagsins, var ómyrkur í máli á samfélagsmiðlinum X í gær.

„Á sama degi og á að vekja athygli á ofbeldi gegn konum berast okkur þessar skelfilegu fréttir. Við leggjum til efnafræðilega geldingu til að stöðva nauðgara og barnaníðinga, og tillagan okkar er þegar komin fyrir þingið. Allir þurfa að leggja sitt af mörkum […] Við verðum að uppræta ofbeldið.“

Lögreglumaður sem kom að málinu segir við Daily Mail að árásin hafi verið sérstaklega óhugnanleg og parið hafi verið beitt miklu ofbeldi.

Mennirnir eru sagðir hafa sagt í yfirheyrslum hjá lögreglu að þeir hefðu ætlað að ræna parið til að eiga fyrir fíkniefnum. Þeir hefðu gert það áður og einkum beint spjótum sínum að vændiskonum í borginni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?
Pressan
Í gær

Saga Betty og Barney Hill skók heimsbyggðina – Hvað gerðist í raun og veru?

Saga Betty og Barney Hill skók heimsbyggðina – Hvað gerðist í raun og veru?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ætla ekki að skera undan birninum

Ætla ekki að skera undan birninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Öryggissérfræðingur segir að svona gerir þú farangurinn þinn minna aðlaðandi í augum þjófa

Öryggissérfræðingur segir að svona gerir þú farangurinn þinn minna aðlaðandi í augum þjófa