fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Pressan

Myrti frænku sína – Höfðar mál á hendur sjónvarpsstöð

Pressan
Þriðjudaginn 3. júní 2025 06:30

Taskan sem líkið var sett í. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2006 var hin tvítuga Banaz Mahomd, ensk-írösk kona, myrt eftir fyrirmæli frá föður sínum og föðurbróður. Ástæðan var að hún hafði yfirgefið eiginmann sinn, sem beitti hana ofbeldi, og hafði fundið sér nýjan mann. Allt var þetta gegn vilja fjölskyldu hennar.

En nú eru nýjar vendingar í málinu að sögn The Sun. Miðillinn segir að frændi Banaz, Ari Mahmod, hafi höfðað mál á hendur sjónvarpsstöðinni ITV fyrir að hafa haldið því fram í sjónvarpsmynd og heimildaþætti að hann hafi leyft þremur frændum hennar að nauðga henni áður en hún var myrt af honum, föður sínum og þremur öðrum ættingjum.

Morð af þessu tagi eru yfirleitt skipulögð og framin af einum eða fleiri ættingjum í sameiningu. Er þetta gert til að endurreisa heiður fjölskyldunnar sem fórnarlambið hefur að mati viðkomandi skaðað með hegðun sinni.

Ari Mahmod segir að nauðgunarásakanirnar geri að verkum að orðspor hans sé nú ónýtt og að fjölskylda hans beiti hann þvingunum.

„Í landinu mínu er morð eðlilegt og að maður fái nýtt tækifæri eftir afplánun dóms. Í mínu menningarsamfélagi, voru það aðallega nauðgunarásakanirnar sem fólk brást við,“ sagði hann þegar hann kom fyrir rétt í Englandi í gegnum fjarfundabúnað.

Hann sagði að nauðgun sé mjög tabúlagt efni í íslömsku samfélagi og sé meðal verstu glæpanna.

Banaz var kyrkt á heimili foreldra sinna og lík hennar var síðan sett í tösku.

Faðir hennar, föðurbróðir og þrír aðrir karlkyns ættingjar hennar voru dæmdir í ævilangt fangelsi fyrir morðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Óttast að Rússar grípi til kjarnavopna eftir atburðina um helgina

Óttast að Rússar grípi til kjarnavopna eftir atburðina um helgina
Pressan
Í gær

Leyniþjónustan sögð leita leiða til að fá Trump til að fylgjast betur með – Teiknimyndir, sprengingar og útsendingar í anda FOX-fréttastofunnar

Leyniþjónustan sögð leita leiða til að fá Trump til að fylgjast betur með – Teiknimyndir, sprengingar og útsendingar í anda FOX-fréttastofunnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum lögmaður Trump segir að forsetinn sé afbrýðisamur og ætli að ná höggi á Musk

Fyrrum lögmaður Trump segir að forsetinn sé afbrýðisamur og ætli að ná höggi á Musk
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stefnumótið gekk vel þar til karlmaðurinn lagði próf fyrir hana – Stjórnsemi hans lauk ekki þar

Stefnumótið gekk vel þar til karlmaðurinn lagði próf fyrir hana – Stjórnsemi hans lauk ekki þar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrst var það TACO – Nú er það FAFO og Trump er öskureiður

Fyrst var það TACO – Nú er það FAFO og Trump er öskureiður
Pressan
Fyrir 2 dögum

TACO er nýja viðurnefni Trump og honum er ekki skemmt – Er sannleikskorn í kenningunni?

TACO er nýja viðurnefni Trump og honum er ekki skemmt – Er sannleikskorn í kenningunni?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sefur hundurinn þinn allan daginn? Þá er hann að gera það sem hann á að gera

Sefur hundurinn þinn allan daginn? Þá er hann að gera það sem hann á að gera
Pressan
Fyrir 3 dögum

Afi og amma fóru í frí í 2 vikur – Trúðu varla breytingum þegar þau komu heim

Afi og amma fóru í frí í 2 vikur – Trúðu varla breytingum þegar þau komu heim