Ferðamannaiðnaðurinn er í miklum blóma í Japan og er það kærkomið eftir erfiða tíma á meðan heimsfaraldur kórónuveirunnar herjaði. Ferðamönnum fjölgar stöðugt en nú ógnar ansi klikkuð og óhugnanleg teiknimyndasaga sumrinu hjá ferðaþjónustuaðilum.
The Guardian segir að japönsk teiknimyndasaga, í hinum vinsæla Manga-flokki, hafi nánast kveikt elda í Internetinu í Suðaustur-Asíu og að ótti sé farinn að grípa um sig hjá mörgum.
Miðpunktur alls þessa er teiknimyndaserían „The Future I Saw“. Hún kom fyrst út 1999 og vakti þá athygli því á forsíðunni var miklum hörmungum spáð í Japan í mars 2011. Þessi „spádómur“ byggðist á „draumsýn“ höfundarins.
12 árum síðar, 11. mars 2011, reið öflugur jarðskjálfti yfir Japan og olli flóðbylgju sem varð um 20.000 manns að bana og eyðilagði kjarnakljúfana í Fukushima kjarnorkuverinu.
Og nú eru margir skelkaðir því endurprentun útgáfu frá 2021 segir höfundurinn að miklar hörmungar muni ríða yfir Japan þann 5. júlí 2025, eftir um mánuð.
Spádómurinn er á miklu flugi í netheimum. NKH-sjónvarpsstöðin sagði í apríl að rúmlega 1.400 YouTube-myndbönd um þessa hamfaraspá hafi fengið meira en 100 milljón áhorf. Þessi myndbönd eru til á kínversku, víetnömsku og taílensku.
Bloomberg Intelligence segir að miðað við gögn frá greiningarfyrirtækinu ForwardKey sjáist að mikill samdráttur hafi orðið á kaupum á flugferðum til Japan frá nágrannaríkjum á borð við Suður-Kóreu, Taívan og Hong Kong.
Samdrátturinn frá Hong Kong er 50% miðað við sama tíma í fyrra.
Flugfélagið Greater Bay Airlines, frá Hong Kong, segir að mikill samdráttur hafi orðið í bókunum og segja þetta afleiðingum orðróma um yfirvofandi hörmungar auk áhrifa tollastríðs Bandaríkjanna. Starfsmaður flugfélagsins sagði í samtali við The Mainichi að samtöl við viðskiptavini sýni að mjög margir trúi á spádóminn.