Að drekka sítrónuvatn á fastandi maga – Þetta hljómar svolítið eins og „afeitrun“ en líkaminn sér sjálfur um afeitrunina í gegnum lifrina og nýrun. Sítrónuvatn getur pirrað magann, sérstaklega ef þú hefur tilhneigingu til að fá brjóstsviða. Það er því í fínu lagi að hætta að drekka sítrónuvatn á fastandi maga og betra fyrir tennurnar.
Hugleiðsla og öndunaræfingar klukkan 05.30 – Ef þú vaknar þreytt(ur) og fúl(l), þá gerir hugleiðsla engin kraftaverk. Sérstaklega ekki ef það er orðin einhverskonar skylda að sinna henni. Það er hægt að finna ró og einbeitingu á margan hátt. Hættu þessu bara og finndu þína eigin aðferð til að öðlast ró. Kannski bara 5 ró í sturtunni eða með því að horfa út um gluggann í 5 mínútur á meðan þú drekkur kaffið þitt.
Fasta – Fyrir suma virkar að sleppa morgunmatnum en ef maður gerir það „af því að maður á að gera það“ er hætt við að það endi með að ómótstæðileg löngun í eitthvað matarkyns grípi mann og jafnvel að líkaminn verði fyrir orkuskorti. Það er því best að hlusta á líkamann, ef þú finnur til svengdar, þá skaltu borða. Það er engin hörmung, það er skynsemi.
Dagbókarskrif klukkan 06 – Ef þú elskar þetta, þá er það frábært. Ef þér finnst þetta frekar leiðinlegt verkefni, slepptu því. Ef þér finnst þetta leiðinlegt, þá missir þetta marks og er orðið að skylduverkefni.
Ískalt bað – Sumir fara í ískalt bað á morgnana til að „styrkjast andlega“. – Kalt bað getur veitt dópamínskot en það er ekki nauðsynlegt til að dagurinn verði góður. Ef þér finnst þetta einna helst vera kvöð eða pynting, þá skaltu sleppa þessu.
Þrjár morgunrútínur sem gefa góða meiningu
Hreyfðu þig smávegis – Þú þarft ekki að hlaupa maraþon að morgni en nokkurra mínútna göngutúr, teygjuæfingar eða eitthvað annað, kemur blóðrásinni af stað og líkaminn vaknar á náttúrulegan hátt.
Borðaðu eitthvað prótínríkt – Egg, jógúrt, skyr, ostur, hnetur og baunir halda blóðsykrinum í jafnvægi og heilanum vakandi. Þetta er eldsneyti ekki bara fylling.
Leggðu farsímann frá þér fyrstu 20 mínúturnar – Enginn tölvupóstur, ekkert TikTok, engar fréttir. Gefðu heilanum tíma til að vakna í rólegheitum áður en þú dælir upplýsingum í hann. Það veitir betri einbeitingu inn í daginn.
Morgunrútínur eiga að hjálpa þér, ekki stressa þig. Þú þarft ekki að fara á fætur og gera ákveðið marga hluti til að dagurinn verði góður. Góður morgun snýst ekki um hversu marga hluti þú gerir, hann snýst um að gera það sem virkar fyrir þig.