fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
Pressan

Viðurnefnið sem Trump er brjálaður yfir – „Aldrei endurtaka það sem þú sagðir“

Pressan
Föstudaginn 30. maí 2025 19:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseta var ekki skemmt á miðvikudaginn þegar blaðamaður útskýrði viðurnefni sem bandaríski fjármálamarkaðurinn, gjarnan kenndur við Wall Street, hefur gefið forsetanum.

Forsetinn var staddur á blaðamannafundi þegar blaðakona spurði hann um nýtt viðurnefni sem tollastefna forsetans hefur fengið á Wall Street: TACO trade, eða taco-viðskipti. Blaðakonan úrskýrði að skammstöfunin TACO vísaði til: Trump always chickens out. Á íslensku væri það: Trump flýr alltaf þegar á hólminn er komið. „Hvernig viltu bregðast við þessu [viðurnefni]?“ spurði blaðakona.

Viðurnefnið á rætur að rekja til þess að Trump hefur farið mikinn í tollastríði sínu við heiminn, en þó meira í orði en á borði. Hann hefur ítrekað frestað tollum, lækkað þá og farið fram og til baka með þetta allt saman. Nú stóð til dæmis til að setja 50% tolla á innflutning frá aðildarríkjum Evrópusambandsins, tollarnir áttu að taka gildi 1. júní. En þegar markaðir í Evrópu fóru að sýna merki um streitu ákvað Trump að fresta gilditökunni til 9. júlí.

Forsetinn virtist fyrst ekki skilja hvað blaðakonan átti við og sagðist aldrei hafa heyrt þetta viðurnefni áður. „Flý ég af hólmi? Er það nú? Ég hef aldrei heyrt þetta.“

Síðan fór forsetinn í vörn.

„Við höfum gefið frest til 9. júlí. Kallarðu það heigulshátt?“ skaut hann til baka og hélt svo áfram: „Fyrir hálfu ári var þetta land steindautt. Við vorum með land sem fólk trúði ekki að myndi lifa af. Og nú kemurðu með svona andstyggilega spurningu? Þetta kallast samningaviðræður. Aldrei endurtaka það sem þú sagðir. Þetta er viðurstyggileg spurning.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Telja að morðinginn líti svona út í dag

Telja að morðinginn líti svona út í dag
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fornleifafundur sagður varpa nýju og óvæntu ljósi á uppruna fótboltans – Nágrannar bítast um hnossið

Fornleifafundur sagður varpa nýju og óvæntu ljósi á uppruna fótboltans – Nágrannar bítast um hnossið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kona sem ætlaði að fljúga til Berlínar endaði í allt öðru landi

Kona sem ætlaði að fljúga til Berlínar endaði í allt öðru landi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Unglingur dæmdur í fangelsi fyrir að hafa myrt sjö barna föður í Cardiff

Unglingur dæmdur í fangelsi fyrir að hafa myrt sjö barna föður í Cardiff
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leikkona vonast til að endurlífga 13 ára son sinn sem lést á föstudag – Er í kapphlaupi við tímann

Leikkona vonast til að endurlífga 13 ára son sinn sem lést á föstudag – Er í kapphlaupi við tímann
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sextug kona í dái eftir að innbrotsþjófur braust inn á heimili milljarðamærings

Sextug kona í dái eftir að innbrotsþjófur braust inn á heimili milljarðamærings