Hallie Walker tók Uber heim til sín í New York og sat í aftursætinu í sárri þörf fyrir einhver sætindi. Þrátt fyrir að klukkan væri ellefu að kvöldi, ákvað hún að fá sér súkkulaði og borðaði sex bita af því á leiðinni.
Þegar Walker kom heim til sín fór hún beint í háttinn, en vaknaði um hálftíma seinna rennblaut af svita.
„Ég fann fyrir ógleði og var í mikilli geðshræringu,“ segir Walker við People. „Hjartað í mér sló á fullu og allur líkami minn skalf kröftuglega í marga klukkutíma. Ég hélt að ég væri að fá kvíðakast sem myndi bara ekki taka enda. Ég kúgaðist yfir klósettinu í marga klukkutíma, grét og sagði manninum mínum að ég væri að deyja.“
Um sexleytið náði Walker loksins að sofna í nokkra klukkutíma. En þegar hún vaknaði leið henni enn hræðilega.
Það var ekki fyrr en seinna um morguninn sem hún áttaði sig á því hvað hafði í raun gerst: hún hafði ekki lesið innihaldslýsinguna á súkkulaðinu. Hún hafði óvart borðað Alice Focus & Energy Mushroom Chocolate, þar sem hver stykki inniheldur 66 mg af koffíni.
„Ég er alls ekki koffínmanneskja. Ég drekk það bókstaflega ekki vegna þess að mér finnst það alltaf skrítið. Öðru hvoru fæ ég chai latte og jafnvel það fer ekki vel í mig.“
Walker, sem er 27 ára gömul leikona og efnishöfundur sem gerir gamanmyndbönd á TikTok, segir að jafnvel í miðri ringulreiðinni hafi hún áttað sig á að þetta væri frábært efni. Svo hún tók upp myndband um upplifunina og setti það á samfélagsmiðil sinn. Um 1,8 milljón áhorf eru á myndbandið.
@hallielooyaaBut first, coffee!
„Þetta jafngildir fimm Red Bulls,“ sagði einn netverji við myndband hennar.
„Sem fyrrverandi öfluðgur koffínneytandi, þá eruð þið ekki að taka þetta nógu alvarlega. Hjartaáfall/hjartastopp í þessum tilfellum er raunverulegt,“ skrifaði annar.
„Ummælin breyttust í koffínólympíuleikana,“ segir Walker. „Það voru allir að berjast um koffínvísindin og segja frá hversu mikið þeir drekka á hverjum degi.“
„Ég kann bara ekki að lesa, greinilega,“ segir hún í gríni. „Framleiðandi súkkulaðisins sendi mér í raun mjög sætan umönnunarpakka eftir að hafa séð myndbandið mitt, hann innihélt fullt af vörum til að hjálpa við svefn. Ef ég hefði tekið fimm sekúndur í að lesa merkimiðann áður en ég mokaði súkkulaðinu í túlann á mér,“ segir hún í gríni.