Berlingske skýrir frá þessu og segir að 75 manns hafi tekið þátt í rannsókninni. Hafi fólkið farið í sneiðmyndatöku, blóðprufur og útfyllt spurningalista eftir að hafa drukkið drykk sem innihélt gervisætuefnið súkralósa, einnig nefnt E955.
Rannsóknin leiddi í ljós að heilinn bregst við gervisætuefnum á sama hátt og við sykri. En líkaminn losar sig hins vegar ekki við mettunarhormóna sem láta svengdartilfinningu venjulega hverfa.
Í stuttu máli sagt, þá fellur heilinn fyrir hugmyndinni á bak við gervisætuefni en líkaminn ekki.
Per Bendix Jeppesen, sem vinnur við rannsóknir á gervisætuefnum hjá Árósaháskóla, sagði í samtali við TV2 að þetta sé fyrsta rannsóknin á fólki sem snýst um gervisætuefni og áhrif þeirra á mettunarhormóna. Hann sagði niðurstöðuna mjög áhugaverða og hafi einnig komið á óvart.
Rannsóknin hefur verið birt í hinu virta vísindariti Nature Metabolism.
Hluti þátttakendanna var í kjörþyngd, aðrir voru of þungir og enn aðrir allt of þungir. Allir þátttakendurnir voru teknir í prufu þrisvar sinnum. Í hvert sinn fengu þeir drykk. Einu sinni með sykri, einu sinni með súkralósa gervisætuefni og einu sinni vatn.
Niðurstöður sneiðmyndatöku sýndu að þegar þátttakendurnir drukku drykkina með sykri og gervisætuefninu, brást heilinn við á sama hátt.
En mikill munur kom í ljós þegar þátttakendurnir drukku drykkinn með súkralósa því engin áhrif komu fram í blóðprufunum.
Jeppesen sagði að það sé mjög athyglisvert að þegar þátttakendurnir fengu hreinan sykur, þá hafi líkaminn sent mettunarhormónana leptín og GLP-1 upp í heilann til að segja honum að hann hefði fengið eitthvað mettandi. Þegar þátttakendurnir drukku súkralósa hafi ekkert komið fram í blóðprufunum en heilinn hafi hins vegar trúað því að hann hafi fengið sykur.
Hann sagði að súkralósa gervisætuefnið hafi haft mest áhrif á heilastarfsemi þeirra sem voru í ofþyngd.
Jeppesen sagðist ekki í neinum vafa um að sömu áhrif muni koma í ljós ef önnur gervisætuefni verða prófuð á sama hátt. Þar á meðal asptartam, E951, sem er ódýrara en súkralósi og er því mikið notað.
Hann sagði að flest gervisætuefni muni hafa sömu áhrif á líkamann, að láta heilann vinna enn harðari höndum að því að ná mettun.
Svör þátttakendanna eftir að þeir drukku súkralósa sýndu einnig skýr áhrif efnisins á þá, því þeir fundu fyrir meiri svengd eftir að hafa drukkið efnið. Svengdartilfinningin var minni eftir að þeir drukku sykur.