fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Segir þetta mesta „turnoffið“ hjá körlum í svefnherberginu

Pressan
Mánudaginn 24. mars 2025 04:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmenn – lesið þetta og leggið á minnið! Stefnumótasérfræðingur, kona, skýrði nýlega frá svolitlu sem karlar gera í svefnherberginu og telja að sé mjög mikilvægt fyrir kynlífið en er ekkert annað en risastórt „turnoff“.

Ef þið viljið vita hvað konunni ykkar líkar við í svefnherberginu, þá er auðvitað einfaldast að spyrja hana – eitt það mikilvægasta varðandi heilbrigt kynlíf er að tala saman um hvað þið viljið.

En fyrir ykkur sem viljið helst sleppa við slík samtöl eða þorið einfaldlega ekki að taka þau þá er auðvitað til fjöldinn allur af sérfræðingum sem bjóða upp á hin ýmsu ráð varðandi samskipti kynjanna og kynlífið. Það er ekkert annað að gera en vona að þessi ráð þeirra eigi einmitt við þá stöðu sem þið eruð í.

Einn þessara sérfræðinga er Jana Hocking, sem stýrir hlaðvarpinu „Jana with a J“ sem sagði í samtali við news.com.au að eitt af því sem karlar gera kolrangt í svefnherberginu, og sé eitt stórt „turnoff“, sé að þeir haldi að þeir þurfi að halda út óralengi.

Hún sagði að ef hún megi velja á milli kynlífs sem varir í hálfa mínútu eða eina klukkustund, þá myndi hún, og það sama eigi við um vinkonur hennar, frekar velja styttri kostinn og það sé „stærsta hrós sögunnar“.

Rétt er að hafa í huga að hvorki hálf mínúta né klukkustund er ákjósanlegur tími fyrir kynlíf. Þá er átt við tímann sem líður frá því að getnaðarlimur, eða annað er sett inn í leggöngin, og þar til þeirri athöfn lýkur.

Rannsókn á kynlíf 500 para leiddi í ljós að karlmennirnir töldu 16 mínútur vera hinn fullkomna tíma fyrir kynlíf en sögðust um leið telja, að þeir endist í allt að níu mínútur frá innsetningu og þar til þeir hafa sáðlát en að meðaltali haldi þeir út í sex mínútur.

Þá er forleikurinn auðvitað ekki talinn með.

Hvað varðar konurnar þá leiddi önnur rannsókn, sem 4.000 konur tóku þátt í, í ljós að þær vilja að sjálfar samfarirnar vari í 25 mínútur.

Það er því ljóst að hálf mínúta er of skammur tími og klukkustund er allt of langur tími.

Hocking sagði að margir karlar hafi líklega fengið slæmar hugmyndir hvað þetta varðar úr „fáránlegum klámmyndum þar sem samfarirnar eru endalausar“ og þess vegna haldi þeir að það sé mikilvægt að halda út mjög lengi.

Hún sagði að konur vilji ekki eyða „mörgum klukkustundum í rúminu að gera sama hlutinn aftur og aftur“ sem sé einfaldlega leiðinlegt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tvöfalt líf lyfjafræðingsins: Afhjúpa manninn á bak við eina alræmdustu vefsíðu heims

Tvöfalt líf lyfjafræðingsins: Afhjúpa manninn á bak við eina alræmdustu vefsíðu heims
Pressan
Í gær

Hann var myrtur árið 2021: Á mánudag ávarpaði hann morðingja sinn

Hann var myrtur árið 2021: Á mánudag ávarpaði hann morðingja sinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Myndband varpar ljósi á hrikalegt slys áhorfandans

Myndband varpar ljósi á hrikalegt slys áhorfandans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sannleikanum verður hver sárreiðastur – MAGA-liðar fokillir út í gervigreindina sem neitar að taka undir með þeim

Sannleikanum verður hver sárreiðastur – MAGA-liðar fokillir út í gervigreindina sem neitar að taka undir með þeim
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lést þegar sprengja sprakk í höndum hennar

Lést þegar sprengja sprakk í höndum hennar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa