fbpx
Mánudagur 24.nóvember 2025
Pressan

Stórfelld svik með dýrar vínflöskur eru nýjasta „búgrein“ svikahrappa

Pressan
Föstudaginn 25. október 2024 22:00

Það er ekkert grín þegar rauðvín sullast í föt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Með fölsuðum miðum og eftirlíkingum af vínflöskum tókst ítölskum svikahröppum að blekkja vínkaupmenn alls staðar að úr heiminum til að greiða háar fjárhæðir fyrir það sem þeir töldu vera franskt lúxusvín.

Málum af þessu tagi fer nú fjölgandi og hugmyndaríkir svikahrappar halda ekki aftur af sér í tilraunum sínum til að verða sér úti um fé.

Lögreglan afhjúpaði nýlega hóp ítalskra svikahrappa sem höfðu blekkt vínkaupmenn um allan heim. Er hætt við að fórnarlömbunum hafi svelgst á rauðvíninu sínu þegar þau fréttu af málinu.

Það var franska lögreglan sem var í forystuhlutverki í málinu en hún naut aðstoðar kollega sinna í Sviss og Ítalíu og einnig kom Evrópulögreglan Europol að málinu.

Svikahrapparnir höfðu árum saman selt vín sem átti að vera sannkallað lúxusvín þrátt fyrir að svo væri ekki. Högnuðust þeir um tugi milljóna á þessu.

Þeir framleiddu sitt eigið rauðvín og sögðu það vera franskt. Þeir seldu síðan vínkaupmönnum það og greiddu þeir sem svarar til allt að 2,5 milljóna íslenskra króna fyrir flöskuna. Þetta er auðvitað svívirðilega hátt verð fyrir vín og þá sérstaklega fyrir vín sem er fjarri því að vera í þeim gæðaflokki sem svikahrapparnir sögðu. Það var ekki einu sinni franskt.

Lögreglan gerði húsleit á 14 stöðum í Tórínó og Milanó og lagði hald á mikið magn muna, þar á meðal mikið af vínflöskum sem voru merktar Grand Cru en það merki vísar til vínakra eða vínframleiðenda, aðallega í Frakklandi, sem framleiða vín í mjög háum gæðaflokki. Yfirleitt er þetta vín frá Bordeaux eða Bourgogne.

Einnig var lagt hald á miða á vínflöskurnar, vélar til að setja tappa í flöskur og annað sem tengist áfyllingu. Þá var lagt hald á lúxusvarning og raftæki að verðmæti sem svarar til rúmlega 200 milljóna króna og 15 milljónir í reiðufé. Einnig var lagt hald á skjöl sem sýna hvernig svikahrapparnir báru sig að við þetta allt saman.

Sex voru handteknir, þar á meðal fertugur rússneskur ríkisborgari sem hafði verið undir smásjá lögreglunnar vegna sölu á fölsuðu víni. Hann er talinn vera leiðtogi glæpagengisins.

Talið er að gengið hafið haft sem nemur um 300 milljónum íslenskra króna upp úr krafsinu. BBC skýrði frá þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hataðasta par Bandaríkjanna: Skelltu sér í frí til Mexíkó yfir jólin en skildu ungar dætur sínar eftir einar heima

Hataðasta par Bandaríkjanna: Skelltu sér í frí til Mexíkó yfir jólin en skildu ungar dætur sínar eftir einar heima
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sagðist hafa orðið fyrir hrottalegri árás vegna stjórnmálaskoðana en ekki var allt sem sýndist – „Trump hóra“ 

Sagðist hafa orðið fyrir hrottalegri árás vegna stjórnmálaskoðana en ekki var allt sem sýndist – „Trump hóra“ 
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kýs að deyja á eigin forsendum 25 ára – Hefur barist við sjaldgæfan sjúkdóm alla ævi

Kýs að deyja á eigin forsendum 25 ára – Hefur barist við sjaldgæfan sjúkdóm alla ævi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Viðurstyggð: Par sakfellt fyrir að afhöfða tvö af börnum sínum

Viðurstyggð: Par sakfellt fyrir að afhöfða tvö af börnum sínum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rússar lokka úkraínsk ungmenni til að fremja voðaverk í eigin landi

Rússar lokka úkraínsk ungmenni til að fremja voðaverk í eigin landi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Verður fyrir viðskiptalegum skakkaföllum vegna hneyklismáls fyrrverandi

Verður fyrir viðskiptalegum skakkaföllum vegna hneyklismáls fyrrverandi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Segir sjúkdóm stjörnueiginmannsins hafa haft óvænt áhrif á börn þeirra

Segir sjúkdóm stjörnueiginmannsins hafa haft óvænt áhrif á börn þeirra
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ferðaðist til Bandaríkjanna í leit að ofbeldisfullum dauðdaga – Fannst í grunnri gröf í Flórída

Ferðaðist til Bandaríkjanna í leit að ofbeldisfullum dauðdaga – Fannst í grunnri gröf í Flórída