fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Pressan

Aspasspákonan spáði fyrir um andlát Elísabetar II – Nú er hún klár með spá sína fyrir 2024

Pressan
Miðvikudaginn 3. janúar 2024 04:35

Þessi ágæta kona les framtíðina úr aspas.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Venjulega les fólk ekki framtíðina úr grænmeti en það gerir Jemima Packington, sem býr í Bath á Englandi, því hún segist geta spáð fyrir um framtíðina með því að nota aspas!

Hún er sögð hafa spáð fyrir um stóra atburði á borð við Brexit, sigur Andy Murray á Wimbledon tennismótinu og andlát Elísabetar II. Nú hefur hún skýrt frá hverju við megum eiga von á þetta árið. Hún er ekki ein í sinni fjölskyldu um að búa yfir spádómshæfileika því hún segist hafa erft þennan hæfileika frá frænku sinni sem las framtíðina úr teblöðum.

Í samtali við Metro sagðist hún alltaf hafa notað sömu aðferð og frænka hennar nema hvað hún kastar aspas í stað teblaða og les framtíðina úr aspasnum eftir því hvernig hann lendir. „Ég sé mynstrið samstundis, hugsanlega vegna þess að ég hef langa reynslu af þessu. Spádómar mínir eru venjulega 75-90% réttir. Ég fer yfir spádóma mína og hugsa með mér: „Já, þetta gerðist, já, þetta gerðist.“ Öðru hvoru hef ég rangt fyrir mér þegar ég hef ekki lesið rétt í aspasinn en ég er aldrei langt frá. Ég spáði fyrir um að Boris Johnson yrði forsætisráðherra um fjórum árum áður en hann varð það og fólk hló sig máttlaust.“

Það dregur ekki mátt úr henni að spádómar hennar eru ekki alltaf réttir og hún setti fram spá um hverju við megum búast við á árinu. Þetta eru nokkrir af helstu spádómum hennar fyrir árið.

Skipt verður um ríkisstjórnir um allan heim því fólk verður þreytt á leiðtogum sínum.

Hjá bresku konungsfjölskyldunni mun það bera einna helst til tíðinda að þar munu einhver hjóna skilja og önnur munu skilja að borði og sæng.

Fólk mun hætta að hafa áhuga á fræga fólkinu því almenningur mun beina sjónum sínum að síhækkandi framfærslukostnaði.

Almenningsálitið varðandi atburðina í Miðausturlöndum mun taka breytingum og vendingar eiga sér stað.

Breskir öfgahópar munu glata stuðningi almennings.

Fleiri konur munu dæma knattspyrnuleiki hjá körlum.

Þjóðarleiðtogar munu andast og kona verður forseti Bandaríkjanna.

Áhrifavaldar verða minna áberandi en áður því fólk mun einblína á raunveruleikann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllingur í Þýskalandi – Mætti með hníf í vinnuna og réðst á starfssystkini

Hryllingur í Þýskalandi – Mætti með hníf í vinnuna og réðst á starfssystkini
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ávanabindandi“ ástarsambönd Clint Eastwood rakin í nýrri ævisögu: „Ég ætlaði að gera eins og mér sýndist“

„Ávanabindandi“ ástarsambönd Clint Eastwood rakin í nýrri ævisögu: „Ég ætlaði að gera eins og mér sýndist“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Miðinn í ruslinu breytti lífi hennar

Miðinn í ruslinu breytti lífi hennar
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hetjuleg björgun föður – Stökk á eftir dóttur sinni sem féll frá borði

Hetjuleg björgun föður – Stökk á eftir dóttur sinni sem féll frá borði
Pressan
Fyrir 5 dögum

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“

Flugfreyja segir að flugáhafnir stundi kynlíf í flugstjórnarklefanum – „Vélin er á sjálfstýringu“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Harmleikur á Englandi: 12 ára drengur látinn eftir samfélagsmiðlaáskorun

Harmleikur á Englandi: 12 ára drengur látinn eftir samfélagsmiðlaáskorun