fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
Pressan

Hann er með eitt stærsta typpi í heimi: „Konur hafa hlaupið út úr svefnherberginu“

Pressan
Mánudaginn 29. janúar 2024 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Því er stundum haldið fram að stærðin skipti engu máli en það gæti ekki verið fjær sannleikanum í tilfelli Bretans Matt Barr sem er að öðrum  ólöstuðum með einn stærsta getnaðarlim í heiminum.

Stærðin hefur heldur betur haft áhrif á líf Matts, bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt. Um hann var gerð heimildarmyndin My Massive Cock sem sýnd var á Channel 4 í Bretlandi en í myndinni rifu læknar fram málmbandið til að varpa ljósi á stærðina. Var hún 11 tommur, eða rétt tæpir 28 sentímetrar. Til samanburðar er limur meðalmannsins um helmingurinn af því – og það í fullri reisn.

Matt ræddi við Daily Star um líf sitt en í viðtalinu opinberar hann að bók sé væntanleg um líf hans. Bókin ber hið viðeigandi nafn A Long Story: Life With One Of The World’s Largest Penises.

Það er nefnilega ekki bara eintóm sæla að vera með stóran getnaðarlim og segist Matt hafa mætt ýmsum hindrunum í gegnum tíðina sem hafa haft áhrif á sálarlíf hans.

„Þetta getur verið erfitt. Það er stundum til dæmis erfitt að finna föt sem henta mér. Þetta er eins og með konur sem eru með mjög stór brjóst. Þeim mun stærri sem þau eru, þeim mun meira tekur fólk eftir þeim,“ segir hann.

Í viðtalinu segir Matt að hann hafi verið með fjölda kvenna einungis vegna stærðarinnar. Segist hann til dæmis hafa verið með einni „mjög, mjög frægri konu“ sem hann vill þó ekki nafngreina. Hann hefur þó líka upplifað erfiða tíma í svefnherberginu.

„Ég hef farið á stefnumót með konum sem hafa síðan hlaupið út úr svefnherberginu. Sumar konur eru mjög forvitnar og áhugasamar en það er ekki nokkur möguleiki á að taka „einn stuttan“ – það er ekki fræðilegur,“ segir hann.

Matt segist hafa talsvert fyrir því að klæða stærðina af sér, ef svo má segja. „Það er hægt að fela þetta. Það er ekki ómögulegt en það kostar talsverða vinnu,“ segir hann.

Hann segist aldrei hafa lent í vandræðum úti á hinum almenna vinnumarkaði en viðurkennir að hann tæki ekki að sér hvaða starf sem er. „Ég myndi til dæmis aldrei starfa sem kennari. Ég myndi ekki starfa við sundkennslu eða svipað starf,“ segir hann.

Matt segist aldrei fengið svör við því hvers vegna hann er með jafn stórt typpi og raun ber vitni, hvort erfðir spili þar mögulega inn í – eða bara hvort um heppni eða óheppni sé að ræða, hvernig litið er á það. „Það getur enginn svarað því en það væri gaman að vita það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Saup seyðið af því að troðast fram fyrir aðra flugfarþega – „Við förum öll í sömu flugvélina, ekki satt?“

Saup seyðið af því að troðast fram fyrir aðra flugfarþega – „Við förum öll í sömu flugvélina, ekki satt?“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sagður hafa hlotið óvenju harðan dóm fyrir að stela ljósmynd – Skipti máli hver var á myndinni?

Sagður hafa hlotið óvenju harðan dóm fyrir að stela ljósmynd – Skipti máli hver var á myndinni?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir ævintýraleg tryggingasvik – Greindi sjúklinga ranglega með liðagigt til að fjármagna lúxuslífsstíl

Læknir dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir ævintýraleg tryggingasvik – Greindi sjúklinga ranglega með liðagigt til að fjármagna lúxuslífsstíl
Pressan
Fyrir 3 dögum

FOX-fréttamaður segist ekkert skilja hvert Trump er að fara

FOX-fréttamaður segist ekkert skilja hvert Trump er að fara