fbpx
Mánudagur 20.mars 2023
Pressan

Þjóðverjar slegnir óhug – 12 og 13 ára stúlkur stungu 12 ára stúlku til bana

Pressan
Miðvikudaginn 15. mars 2023 07:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvær stúlkur, 12 og 13 ára, hafa játað að hafa stungið 12 ára stúlku til bana nærri bænum Freudenberg í Nordrhein-Westfalen á laugardaginn. Málið hefur að vonum vakið mikinn óhug í Þýskalandi.

Fórnarlambið, sem er nefnd Luise í þýskum fjölmiðlum, var hjá vinkonu sinni á laugardaginn. Þegar hún skilaði sér ekki heim tilkynntu foreldrar hennar lögreglunni um hvarf hennar og hófst mikil leit.

Luise fannst á sunnudaginn í skógi nærri heimili sínu. Hún var látin þegar að var komið. Maria Mannweiler, saksóknari, sagði á fréttamannafundi að hún hafi látist af völdum fjölda hnífstungna og blóðmissis vegna þeirra.

Hann sagði að stúlkurnar tvær hafi „tjáð sig um málið og að lokum játað að hafa myrt Luise“.

Hann veitti ekki frekari upplýsingar um málið og ræður aldur stúlknanna þar miklu því samkvæmt þýskum lögum eru þær ekki sakhæfar. Saknæmisaldur í Þýskalandi er 14 ár.

Lögreglan hefur ekki fundið morðvopnið eða morðvopnin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mögnuð uppgötvun í minnisblöðum Leonardo da Vinci

Mögnuð uppgötvun í minnisblöðum Leonardo da Vinci
Pressan
Fyrir 2 dögum

Japan töldu eyjarnar við landið og fundu einar 7.273 nýjar

Japan töldu eyjarnar við landið og fundu einar 7.273 nýjar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segir að fleiri heimsfaraldrar muni skella á okkur

Segir að fleiri heimsfaraldrar muni skella á okkur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Földu lík 16 ára sonar síns og sögðu að hann hefði strokið að heiman

Földu lík 16 ára sonar síns og sögðu að hann hefði strokið að heiman