Bedbible skilgreinir sig sem vefsíðu „með allt um kynlíf og kynlífstæki“. Ladbible segir að verkefni Rebecca sé að gera „ítarlega“ skýrslu um stefnur og strauma í klámi og taka saman tölfræðilegar upplýsingar.
Um 90.000 umsóknir bárust um starfið en um hlutastarf er að ræða eða fimm klukkustundir á viku. Tímakaupið er sem svarar til um 2.800 íslenskra króna.
Eins og fyrr sagði þá var það Rebecca sem fékk starfið og segir hún að það hafi verið draumur sem rættist þegar hún fékk það. „Þetta er frábært. Ég er enn í áfalli. Í alvöru talað þá verður þetta ekki mikið betra en þetta,“ sagði hún.
Fyrsta verkefni hennar var að horfa á 100 vinsælustu klámmyndböndin á Pornhub. Hún átti að skrá lengd hvers myndbands, fjölda kynlífsstellinga sem voru notaðar, hvaða stellingar það voru, fjölda fullnæginga, hvaða tungumál var talað og háralit leikaranna.
Hún segist hafa horft töluvert á klám áður en hún fékk starfið og það sé því frábært að fá laun fyrir að sinna áhugamáli sínu. Hún segir að það sé þó öðruvísi að horfa á klám vegna vinnu sinnar en sem áhugamál. Til dæmis geti hún ekki spólað yfir ákveðna hluti núna eins og hún var vön að gera áður.
Hún er ánægð með starfið og segist reiðubúin til að hætta í núverandi aðalstarfi sínu hjá bílaleigu einni til að fara að horfa á klám í fullu starfi. Hún segir að Bedbible hafi sagt að „reiknað“ sé með að starf hennar verði full starf „því hún standi sig svo vel“ og segist hún meira en reiðubúin til að samþykkja tilboð um að horfa á klám í fullu starfi. „Það get ég örugglega gert,“ sagði hún.