fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Síðustu orð fangans fyrir aftökuna

Pressan
Fimmtudaginn 17. nóvember 2022 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður í Texas í Bandaríkjunum hefur verið tekinn af lífi fyrir að myrða ólétta fyrrverandi kærustu sína og son hennar. Morðinginn, Stephen Barbee, var sakfelldur árið 2005 fyrir að hafa myrt Lisu Underwood og sjö ára son hennar Jayden. Hann kæfði mæðginin á heimili þeirra og gróf þau svo um 64 kílómetrum í burtu.

Barbee hafði viljað koma í veg fyrir að eiginkona hans kæmist að því að hans fyrrverandi kærasta, Lisa Underwood, væri þunguð, líklega af hans völdum. Lisa var komin sjö mánuði á leið og átti beyglustað sem hún hafði skýrt eftir syni sínum. Lögregla hóf að leita að henni og syni hennar eftir að vinir Lisu fóru að hafa áhyggjur í kjölfar þess að hún mætti ekki í steypiboð.

Barbee játaði til að byrja með. á sig ódæðið en tók svo játninguna til baka og hélt því fram að hann hefði verið þvingaður til játningar. Hann hefur síðan þá haldið fram sakleysi sínu og sagt að viðskiptafélagi hans hafi varpað á hann sök.

Barbee var sakfelldur fyrir morðin og hlaut dauðarefsingu sem var framfylgt á miðvikudag eftir að ítrekuðum beiðnum hans um frestun var hafnað.

Fjölskylda Lisu var viðstödd aftökuna og héldust. þar í hendur. Seinasta verk Barbee var að tala um kristna trú sína og þá von hans að vinir hans og fjölskylda yrðu ekki leið. Svo sagði hann sín síðustu orð:

„Ég er tilbúinn fangavörður. Sendu mig heim,“ sagði Barbee í gegnum tárin. „Ég vil bara að allir fái frið í sitt hjarta.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 4 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?