Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, elskar hunda og það hefur eflaust haft áhrif á að hann hefur viðrað hugmynd um að bannað verði að borða hundakjöt í landinu en það er gamall siður að borða það. Neysla á hundakjöti hefur ekki verið óumdeild og hefur oft þótt verða Suður-Kóreu til álitshnekkis erlendis.
Talið er að ein milljón hunda endi á matarborðum Suðurkóreubúa árlega en heldur hefur dregið úr neyslu á hundakjöti á síðustu árum eftir því sem fleiri eru farnir að líta á hunda sem félaga frekar en búfénað. Það er sérstaklega á meðal yngri kynslóðanna sem neysla á hundakjöti virðist vera á undanhaldi hjá. The Guardian skýrir frá þessu. Að auki hefur þrýstingur dýraverndunarsamtaka aukist á síðustu misserum.
Á vikulegum fundi Moon með Kim Boo-kyum, forsætisráðherra, spurði forsetinn hvort ekki væri kominn tími til að íhuga bann við neyslu á hundakjöti. Talsmaður forsetans skýrði frá þessu í gær.
Gæludýraiðnaðurinn fer stækkandi í Suður-Kóreu og sífellt fleiri halda hunda, þar á meðal forsetinn sem er þekktur fyrir ást sína á hundum.