fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Ráðgátan um Lucan lávarð

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 9. febrúar 2020 22:00

Hjónin Hér sést lávarðurinn með eiginkonu sinni, Veronicu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í rúmlega fjóra áratugi hefur ráðgátan um hvarf Lucan lávarðar sett mark sitt á umræðuna í Bretlandi. Hann hefur margoft „sést“ víða um heim, til dæmis í Afríku, Hollandi og San Francisco, sem hippi á Indlandi og á Nýja-Sjálandi þar sem hann var sagður búa í Land Rover-bifreið með geit sem hét Camilla. Einn vina Lucan sagði að hann hafi skotið sig á sínum tíma og líkið hafi verið notað sem fæða fyrir tígrisdýr í dýragarði sameiginlegs vinar þeirra. Eiginkona hans, sem fór varla úr húsi í fjóra áratugi, hélt því alla tíð fram að hann hefði hoppað fyrir borð af ferju og hafi lent í skrúfu hennar. Ekkert af þessu reyndist á rökum reist.

Ef Lucan er á lífi þá er hann orðinn 85 ára. Hann var þó úrskurðaður látinn af breskum dómstól fyrir fjórum árum. En af hverju þessi áhugi á honum? Ástæðan er að fyrir 46 árum myrti hann barnapíu fjölskyldunnar, sem hét Sandra Rivetts, og hvarf síðan sporlaust. Málið hefur alla tíð síðan verið nokkuð ofarlega á baugi í Bretlandi. Margir hafa tengt hvarf Lucan við að hann hafi notið aðstoðar vina sinna úr efri stéttum samfélagsins til að láta sig hverfa. Málið hefur verið tengt við það sem sumir segja ákveðin forréttindi hinna ríku og valdamiklu.

Lögregluvakt Fyrir utan heimili lávarðsins, daginn eftir morðið.

En nú segir sonur Söndru að hann hafi hitt Lucan. Hann segir Lucan búa í Ástralíu, að hann sé alvarlega veikur og sé búddisti. Það er því hugsanlegt að nú sé þetta dularfulla mál við það að leysast. Sonurinn, sem heitir Neil Berriman og er 52 ára, vonast til að nú verði loksins hægt að draga Lucan lávarð fyrir dóm.

„Ég held að mér hafi tekist að hafa uppi á Lucan lávarði sem myrti mömmu. Hann hefur verið á lífi allan þennan tíma. Logið til um hver hann er. Logið að nýjum vinum sínum,“ sagði Berriman í samtali við Daily Mirror.

Fjárhættuspilari og morðingi

Lucan lávarður, sem hét eða heitir í raun Richard John Bingham, var sjöundi jarlinn af Lucan. Hann var þekktur fjárhættuspilari. Hann kvæntist Veronicu Duncan 1963. Hann hafði sest í helgan stein 25 ára að aldri eftir að hafa unnið milljónir í fjárhættuspilum.

Leikur í tré Veronica með börnin tvö.

Hjónin eignuðust þrjú börn og bjuggu í glæsilegu húsi í Belgrave í Lundúnum. En upp úr sauð á milli þeirra hjóna eftir frekar stutt hjónaband og á endanum flutti Lucan frá eiginkonunni. Hófst þá bitur barátta um forræðið yfir börnunum.

Að kvöldi 7. nóvember 1974 sváfu börnin, Frances, 9 ára, George, 7 ára og Camilla, 3 ára, vært. Móðir þeirra var að horfa á sjónvarpið í svefnherberginu. Barnapían, Sandra Rivett, 29 ára, fór niður á aðalhæðina til að sækja te handa húsmóðurinni. Búið var að taka peruna úr perustæðinu í eldhúsinu og í myrkrinu var ráðist á Söndru og hún barinn til dauða með járnröri. Frá upphafi hefur verið talið víst að þar hafi Lucan lávarður verið að verki en talið að þarna væri eiginkona hans á ferð.

Síðar skýrði lafði Lucan frá því að hún hefði komið niður í eldhúsið skömmu síðar og komið að eiginmannin sínum. Hann hefði ráðist á hana með járnrörinu og reynt að kyrkja hana og þrýsta augunum úr augnatóftunum. Hún sagðist hafa náð taki á kynfærum hans. Hún grátbað hann um að þyrma lífi sínu og bað um eitt vatnsglas. Því næst hljóp hún alblóðug út og inn á nærliggjandi bar, Plumber‘s Arms, og öskraði:

Hin myrta Sandra Revitt.

„Hjálpið mér! Hjálpið mér! Hann er í húsinu. Hann myrti barnapíuna.“

Þegar lögreglan kom á vettvang blasti blóðpollur við á aðalhæðinn og í honum var karlmannsfótspor. Lík Söndru lá í póstpoka. Lucan lávarður var horfinn af vettvangi, hafði flúið í bíl sem hann hafði fengið lánaðan hjá góðum vinum sínum. Hann sagði þeim að eiginkona hans hefði sakað hann um að hafa ráðið leigumorðingja til starfa og af þeim sökum þyrfti hann að láta lítið fyrir sér fara um hríð. Þremur dögum síðar fannst bíllinn, útataður í blóði í Newhaven í East Sussex. En ekki fannst tangur né tetur af Lucan lávarði. Þegar hraðbátur hans fannst mannlaus og nær ónýtur eftir árekstur var talið að hann hefði siglt á haf út og fyrirfarið sér. En líkið fannst aldrei eða nokkuð annað sem studdi þetta.

Úrskurðaður látinn

Ári síðar komst kviðdómur að þeirri niðurstöðu að Lucan lávarður hefði að öllum líkindum myrt Söndru Rivett. Yngsti sonur hennar, Neil Berriman, sem var gefinn til ættleiðingar aðeins sex mánaða að aldri, vissi ekki hver líffræðileg móðir hans var fyrr en fyrir þrettán árum þegar fósturmóðir hans, Audrey, lést. Þegar hann opnaði umslagið, sem hann fékk eftir andlát hennar, komst hann að því að Sandra Rivett var móðir hans og að hún hefði verið myrt þegar hann var sjö ára. Síðan þá hefur hann leitað að morðingja hennar.

Þegar Lucan lávarður var úrskurðaður látinn 2016 og sonur hans, George, fékk að taka titil hans sem áttundi jarlinn af Lucan, fékk Berriman bréf með ábendingu um að Lucan lávarður væri enn á lífi. Berriman hefur á undanförnum árum helgað líf sitt leitinni að Lucan lávarði. Nú hefur honum, að því að hann heldur fram, tekist að hafa upp á morðingja móður sinnar.

Leitin mikla Leitað að lávarðinum árið 1974.

Hann segir að Lucan lávarður búi í Ástralíu og hafi gert árum saman. Hann hafi í fyrstu búið í Perth en eftir að hafa margoft lent upp á kant við vini sína hafi hann hann flutt í annan landshluta. Þar hafi hann búið síðustu ellefu árin með tveimur ungum Bretum og Ástrala. Þeim hafi hann kynnst í athvarfi fyrir búddista fyrir ellefu árum. Berriman segir að þeir stundi hugleiðslu saman daglega.

Vinirnir staðfestu við Daily Mirror að eldri Englendingur, sem líkist Lucan lávarði, búi í húsinu. Berriman segir að þeir viti vel að maðurinn sé dularfullur, eldri Englendingur og ekki sá sem hann segist vera. Vinina hafi grunað eitt og annað um manninn árum saman. Maðurinn er sagður þarfnast mikillar daglegrar aðstoðar vegna heilsu sinnar og að hann bíði nú eftir að komast í stóra aðgerð á sjúkrahúsi.

Berriman er sannfærður um að Lucan lávarður hafi yfirgefið England á lífi þessa örlagaríku nótt fyrir 46 árum og hafi notið aðstoðar vina sinna við að komast yfir Ermarsund. Hann hafi fengið nýtt vegabréf og nafn og sé á lífi í dag, 85 ára. Hann segist hafa heimildir fyrir að Lucan lávarður hafi notast við að minnsta kosti sex mismunandi nöfn í gegnum tíðina. Hann hefur kynnt Scotland Yard þau gögn sem hann hefur aflað og vonast nú til að lögreglan rannsaki málið frekar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu
Pressan
Fyrir 4 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf