fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Systir NBA-stjörnu í haldi vegna morðs

Ritstjórn Pressunnar
Mánudaginn 9. september 2019 14:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Riverside-sýslu í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur handtekið tvær konur sem eru grunaðar um hrottafengið morð á 84 ára konu á dögunum.

Kimeshia Williams og Candace Townsel eru grunaðar um að hafa ráðist á konuna, Afaf Ansis Assad, inni á salerni spilavítis í Tamecula í Kaliforníu þann 31. ágúst. Lögregla telur að um rán hafi verið að ræða en Assad hlaut mikla áverka í árásinni og lést af sárum sínum nokkrum dögum síðar.

Williams er systir Kawhi Leonard, eins besta leikmanns NBA-deildarinnar í körfubolta. Leonard varð meistari með liði sínu, Los Angeles Clippers, í vor og var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar.

Sjá einnig: Áfallið árið 2008 sem mótaði einn besta körfuboltamann heims

Dómstóll ákvað að Williams fengi ekki að ganga laus gegn tryggingu í ljósi þess að Kawhi er mjög efnaður, en hann skrifaði nýlega undir samning við Clippers sem færir honum rúmlega hundrað milljónir Bandaríkjadala.

Líf Williams hefur ekki verið neinn dans á rósum á undanförnum árum en hún hefur komist nokkuð oft í kast við lögin á undanförnum árum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu
Pressan
Fyrir 4 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf