Eitt stærsta fyrirtæki heims í klámiðnaðinum hefur lagt fram tilboð upp á tíu milljónir dala, 1.250 milljónir króna, fyrir nafnréttinn á körfuboltahöll NBA-liðsins Miami Heat.
Íþróttafélög um allan heim hafa stundað það að selja nafnið á leikvöngum sínum og fá tekjur í kassann í leiðinni. Þetta tíðkast til dæmis í ensku úrvalsdeildinni þar sem völlur Manchester City heitir Etihad Stadium og völlur Arsenal heitir Emirates Stadium. Þetta hefur líka tíðkast í Bandaríkjunum þar sem lið í stærstu atvinnumannadeildunum selja réttinn.
Það er fyrirtækið BangBros sem hefur boðið tíu milljónir dala í réttinn á höll Miami Heat, en tilboðið var lagt inn strax í kjölfar þess að American Airlines tilkynnti að það myndi ekki endurnýja sinn rétt.
Jessica Kleinschmidt, íþróttafréttamaður NBC Sports, staðfesti það að tilboðið hefði verið lagt fram og ekki væri um grín að ræða. Það þykja þó litlar líkur á að Miami Heat taki tilboði BangBros og nafnið á körfuboltahöllinni verði þá BangBros Center.
Íþróttafélög lúta mörg ströngum siðareglum þar sem ekki er samið við hvaða fyrirtæki sem er. Þannig er fyrirtækjum í veðmála- og áfengis- og tóbaksiðnaði undantekningalaust hafnað. Líkur eru á að sama verði uppi á teningnum að þessu sinni.