fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

FBI telur 79 ára mann hafa minnst 50 morð á samviskunni

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 15. október 2019 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska alríkislögreglan FBI telur að Samuel Little, 79 ára, hafa að minnsta kosti 50 mannslíf á samviskunni. Ef það er rétt þá er hann afkastamesti raðmorðinginn í sögu Bandaríkjanna. Sjálfur segist hann hafa myrt 93. Hann hefur þegar hlotið dóm fyrir þrjú morð.

Hættulegur maður.

Little segist hafa myrt 93 frá 1970 til 2005. FBI hefur þó ekki tekist að tengja hann við nema 50 morð en talsmenn stofnunarinnar segja að ástæða sé til að telja játningar Little trúverðugar.

Lögreglan hefur opnað sérstaka vefsíðu um Little. Þar kemur fram að vitað sé að mörg fórnarlambanna, sem flest voru konur, hafi látist af of stórum eiturlyfjaskammti, í óútskýrðum slysum eða að ekki hafi tekist að staðfesta dánarorsök þeirra. Ekki hefur tekist að finna öll líkin.

Á síðunni er birt myndbandsupptaka af Little þar sem hann segir frá morðunum og birtar teikningar eftir hann af meintum fórnarlömbum hans.

Hann hlaut lífstíðarfangelsisdóm 2014 eftir að hafa verið sakfelldur fyrir þrjú morð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt

Hún kom að eiginmanninum með annarri konu – Síðan gerði hún svolítið hræðilegt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu

Taldi sig vera að hitta 7 og 11 ára stelpur á hóteli – Skotinn til bana af lögreglu
Pressan
Fyrir 4 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf

Gríðarstórt eldfjall á Mars var fyrir „allra augum“ og gæti geymt ummerki um líf