fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Kynning

Ford Focus Active frumsýndur í Brimborg laugardaginn 21. September, Reykjavík og Akureyri 12-16.

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Fimmtudaginn 19. september 2019 10:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brimborg frumsýnir á laugardaginn glænýjan Ford Focus Active.

Verðlaunabíllinn Ford Focus er núna kominn í nýrri útgáfu Active sem er alveg nýtt hugtak fyrir Ford Focus. Jeppa-innblásin hönnun sameinar form og virkni sem skilar enn öflugri bíl.

Ford Focus Active er kröftugur og fjölhæfur bíll sem er bæði hagnýtur og sveigjanlegur. Hann blandar saman fjölhæfni jeppa og akstursupplifun í fremstu röð sem Focus er þekktur fyrir.  Hann er hátt frá jörðu sem gefur betri yfirsýn og þægilegra aðgengi.  Kantar á hliðum gefa bílnum jeppalegra útlit og verja jafnframt hliðar bílsins.

Hann er stútfullur snjöllum lausnum, þar með talið 5 mismunandi akstursstillingar. Þessar stillingar eru Normal, Eco, Sport, Trail og Snow. Þessar stillingar gera það að verkum að bíllinn er frábær í akstri við mjög mismunandi aðstæður.  Þær stilla meðal annars af inngjöf, stýrisstillingu sem og gírskiptingu á sjálfskiptum bílum.  Að auki þá breyta þær fjöðrun bílsins og nýta stöðugleikastýrikerfið og spólvörnina til að bíllinn hafi alltaf besta mögulega grip við hinar ýmsu aðstæður.


Hægt er að vera sítengdur við bílinn með FordPass.  FordPass hjálpar við að finna staðsetningu bílsins og segir til með stöðu bílsins eins og bensínmagn, olíumagn, birtir viðvaranir og fleira.  Það er einnig hægt að opna og læsa bílnum sem og að starta honum með símanum einum.

Alveg nýr Ford Focus Active hefur harðgert og sportlegt ytra útlit, sérlega rúmgóður að innan og vel búinn. Sérhver þáttur er hannaður til að gera akstursupplifunina enn ánægjulegri. Til dæmis er flipaskipting í stýri í sjálfskiptum og 8″ snertiskjár, SYNC 2, og 2x USB tengi.

Flottur stíll og fyrsta flokks gæði haldast í hendur við gott skipulag því öll stjórntæki eru í seilingarfjarlægð. Hönnuðir Ford hafa séð til þess að hvert smáatriði er úthugsað.  Ford Focus Active Station hefur 608 lítra farangursrými.

Alveg nýr Ford Focus er sá allra glæsilegasti Ford Focus bíllinn til þessa og hefur fengið frábæra dóma út um allan heim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7