fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Hrafnagull.is: Auðvelt að finna umhverfisvæna og skaðlausa kosti fyrir börnin okkar

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 29. nóvember 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vefverslunin Hrafnagull byrjaði sem skólaverkefni og er nú orðin ein framsæknasta netverslun landsins, en Hrafnagull selur eingöngu náttúrulegar og umhverfisvænar vörur. „Við gerum okkar besta til að vera sem umhverfisvænst, nota sem minnst af plasti og nota umbúðir sem auðvelt er að endurvinna. Þá skiptir okkur líka miklu máli að fyrirtækin sem framleiða vörurnar séu einnig umhverfisvæn,“ segir Fjóla Brynjarsdóttir hjá Hrafnagulli.

Umhverfisvænt og hagkvæmt fyrir börn og foreldra

„Hrafnagull var opnuð í nóvember 2018 en verslunin var hluti af BSc-ritgerðinni minni í viðskiptafræði sem var viðskiptaáætlun fyrir fyrirtækið. Netverslun er eitthvað sem hefur alltaf heillað mig. Það fer talsvert minni kostnaður í að reka netverslun heldur en verslun niðri í bæ og því þarf ekki að leggja jafn mikið á vörurnar. Börn eru líka viðkvæm og þess vegna er mikilvægt að þau séu að nota leikföng, snuð og annað sem eru náttúruleg og innihalda engin skaðleg efni eins og t.d. BPA. Þess vegna fannst mér tilvalið að opna netverslun sem seldi einungis þannig vörur og auðveldaði þannig foreldrum að kaupa náttúrulegar vörur fyrir barnið sitt. Það er alltaf að bætast við vöruúrval okkar en við byrjuðum á því að selja einungis barnaleikföng. Núna höfum við bætt við okkur til dæmis bakpokum og snuðum og það nýjasta hjá okkur eru bambushandklæðin og sloppar.

Hrafnagull er með lager í Hafnarfirði þar sem hægt er að koma sækja pantanir. „Að sjálfsögðu sendum við líka um land allt. Lagerinn er opinn alla miðvikudaga frá 18.30 til 20.30 en svo bætum við alltaf við opnunartíma um jólin. Það er um að gera að fylgjast með okkur á Facebook.“

 

Vönduð tréleikföng

Vinsælasta varan þessi jólin hjá Hrafnagulli er leikfangahúsin frá Kiko+ sem framleiðir skemmtileg og vönduð tréleikföng. Leikfangahúsið er úr tré og hægt er að setja það saman á ótal vegu og leyfir það þannig ímyndunaraflinu að ráða för. Kubbar fylgja svo með sem hægt er að breyta í húsgögn eða hvað sem er!

Sjálflýsandi plánetupúsl

„Önnur jólagjöf sem er alltaf vinsæl hjá okkur eru spilin og púslin frá Londji sem eru búin til úr endurunnum pappa. Spilin henta börnum alveg frá þriggja ára og upp í tólf ára. Vinsælasta púslið okkar hefur verið geimpúslið þar börnin púsla pláneturnar. Þegar búið er að púsla spilið eru svo ljósin slökkt og þá lýsir það í myrkri.“

Bakpokar úr endurunnum efnum

Bakpoki frá Petit Monkey er önnur falleg gjöf sem hægt er að gefa. Bakpokarnir eru búnir til úr endurunnum plastflöskum, en þeir koma í tveimur stærðum en þeir eru fullkomnir fyrir sund, ferðalagið, íþróttafötin, leikskólann og fleira.

Lífrænn leir

Leirinn frá Ailefo hefur líka verið mjög vinsæll, en hann inniheldur einungis náttúruleg efni og er fyrsti lífræni leirinn á evrópskum markaði. Þar af leiðandi geta börn frá allt að tveggja ára aldri notað hann.

Komdu og upplifðu alvöru jólamarkaðsstemningu

„Við erum dugleg að mæta á markaði, sérstaklega nú um jólin. Næsti markaður er Jóla Pop-Up núna um helgina þar sem við verðum með Black Friday- og Cyber Monday-tilboðin. Þar ætlum við líka að sýna nýjustu vörnurnar okkar frá Timboo, en það eru meðal annars handklæði, þvottapokar og baðsloppar sem búnir eru til úr bambus.

Bambus dregur 60% meira vatn í sig en venjuleg bómull og er einstaklega mjúkur. Þessar vörur eru fullkomnar í jólapakkann og um að gera mæta um helgina á markaðinn og nýta sér afsláttinn sem verður í boði. Einnig verðum við á umhverfisvæna jólamarkaðnum á Eiðistorgi 7. og 8. desember klukkan 11–17. Við erum með flestallar vörurnar okkar á mörkuðum og svo er alltaf hægt að panta fyrirfram og sækja á markaðinn.“

 

Skoðaðu úrvalið í vefversluninni hrafnagull.is. Við sendum hvert á land sem er.

Hrafnagull er með lager að Miðvangi 41, 220 Hafnarfirði

Tölvupóstur: hrafnagull@hrafnagull.is

Fylgstu með Hrafnagulli á Facebook.

Instagram: @hrafnagull

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum