fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Kynning

Húseining: Heimili er svo miklu meira en bara bygging

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 24. ágúst 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Nú þegar hafa verið byggð yfir 170 hús á Íslandi og eru vinsældirnar alltaf að aukast. Húsin eru enda rómuð fyrir styrkleika og einstaklega góða hönnun sem hentar íslensku veðurfari afar vel,“ segir Kjartan Ragnarsson, framkvæmdastjóri Húseiningar.

Tveggja þátta timburhúsin frá Húseiningu eru íslensk hönnun og framleiðsla samkvæmt tilsettum stöðlum og úr sérvöldu C 18–24 gæðatimbri. Lofthæð húsanna er 2,8 metrar og eru þau útbúin þýskum glugga og hurðaprófíl úr PVC, sem tryggir lágmarks viðhald. Húsin eru afar sterkbyggð og umhverfisvæn og heilnæmur íverustaður. Mikil loftun í öllu burðarvirki tryggir gæði og endingu húsanna. Með réttu efnisvali verður til hús sem aldrei þarf að mála.

 

Úrval húsa frá Húseiningu

Húseining býður upp gott úrval af stærri og smærri húsgerðum. Það geta allir fundið gæðaheimili frá Húseiningu sem hentar þeim. Húseining framleiðir tilbúin sumarhús og einbýlishús í verksmiðju, allt að 120 fermetra, og einnig parhús, allt að 240 fermetra, með öllum innréttingum, gólfhita, rafmagni og vatnskerfum, flytja má í húsin strax og þau hafa verið tengd heimæðum á byggingastað. Einnig eru framleiddir forsteyptir sökklar undir húsin.

Smart einbýli tilbúið til flutnings!

Húseining framleiðir í verksmiðjunni tilbúin sumarhús, margar gerðir.

 

Smáhýsi, innviðir.

 

Sumarhús SÓL.

 

Klassik einbýlishús í mörgum gerðum og stærðum.

 

Klassik einbýlishús.

 

Funkis hús í mörgum gerðum.

Verksmiðja Húseiningar er staðsett að Hraunholti á Vogum og eru framleiðsluferlar fyrirtækisins sérhannaðir með það að markmiði að lágmarka kostnað. Í verksmiðjunni er framúrskarandi aðstaða, þar sem hægt er að framleiða og fullklára allt að 240 fermetra hús. Þessi frábæra aðstaða lækkar framleiðslukostnað og eykur gæði húsanna. Húsin eru framleidd og afgreidd fullbúin úr verksmiðju með baði, eldhúsi og öllum innréttingum, tilbúin til flutnings í samvinnu við Samgöngustofu um leiðir á viðkomandi byggingarstað. „Til að tryggja faglega gæðastýringu við hönnun húsanna, fengum við til liðs við okkur þá Kristin Ragnarsson arkitekt, Þorgeir Jónsson arkitekt og Emil Þór Guðmundsson byggingatæknifræðing.“

Láttu drauminn um nýtt heimili eða sumarbústað verða að veruleika með Húseiningu.

Húseining er staðsett að Hraunholti 1, 190 Vogum.

Nánari upplýsingar má nálgast á huseining.is

Allar frekari upplýsingar fást í síma 770-5144 eða með því að senda tölvupóst á kjartan@huseining.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
02.09.2025

Frábær fjölskyldustemning á Kjúklingafestivali í Mosfellsbæ

Frábær fjölskyldustemning á Kjúklingafestivali í Mosfellsbæ
Kynning
16.05.2025

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Kynning
29.01.2025

Fyrirtækjaþjónusta IKEA – fagleg ráðgjöf þér að kostnaðarlausu

Fyrirtækjaþjónusta IKEA – fagleg ráðgjöf þér að kostnaðarlausu
Kynning
23.01.2025

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn