fbpx
Þriðjudagur 02.september 2025
Kynning

Alþjóðleg stemning og gæðaþjónusta í fyrirrúmi

Kynning
Tómas Valgeirsson
Föstudaginn 5. október 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef til stendur að gæða sér á hlýlegum og ljúfengum mat í hjarta Reykjavíkur, en þó nógu langt frá látunum á Laugaveginum, þá þarf ekki að leita lengra en á horn Skólavörðustígs og Óðinsgötu. Þar stendur veitingahúsið Sjávargrillið þar sem lögð er áhersla á ljúffenga sjávarrétti, bæði séríslenska og alþjóðlega.

Eigandi Sjávargrillsins er Gústav Axel Gunnlaugsson, Húsvíkingur í húð og hár sem var kjörinn Matreiðslumaður ársins 2010. Sjávargrillið var opnað ári eftir að eigandinn hreppti titilinn og hefur hvergi komið lægð í fjölda heimsókna síðan.

„Það er ánægjulegt að starfa á veitingastað þar sem gestirnir eru yfir sig ánægðir með bæði mat og þjónustu dag eftir dag,“ segir Guðrún Rúnarsdóttir, veitingastjóri staðarins, og bætir við að hún hafi oft á orði við gestina að eftir 30 ára starfsferil í geiranum finnist henni heiður að vinna á veitingastað þar sem allt þetta helst í hendur að öllu leyti.

„Það er margt mjög spennandi framundan. Við verðum með nýjan matseðil í nóvember með jólaívafi. Skötuhlaðborðið sem hefur hitt í mark á hverju ári verður á sínum stað. Síðan kynnum við sérstakan áramótaseðil á síðasta degi ársins, 31. desember, auk fyrsta dagsins á því nýja,“ bætir Guðrún við.

„Ég mæli með, að þeir sem ekki hafa komið til okkar út að borða ennþá, láti verða að því, því það er upplifun að koma til okkar. Við erum með mikið af fastakúnnum sem koma aftur og aftur. Það er almennt séð skemmtileg flóra af gestum hjá okkur, Íslendingar og ferðamenn í bland. Við leggjum áherslu á faglega, ljúfa og skemmtilega þjónustu, og erum afar stolt af að geta státað af frábærum barþjónum sem laga glæsilega kokteila á meistaralegan hátt, háu hlutfalli af faglærðum þjónum í sal og meisturum í eldhúsinu.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7