fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Ný vítamín framleidd með hinni byltingarkenndu liposomal-tækni

Kynning
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 8. febrúar 2023 13:50

Ásdís Birta Auðunsdóttir er með BS-gráðu í næringarfræði og hefur mikinn áhuga á heilbrigðum lífsstíl en hún mælir hiklaust með vörulínunni frá Cure Support fyrir alla sem vilja tryggja hámarksupptöku og nýtingu næringarefnanna í líkamanum. Mynd/aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cure Support hefur í tvo áratugi verið að þróa hin öflugustu bætiefni sem völ er á með liposomal-tækni sem tryggir hámarks nýtingu og upptöku næringarefna í líkamanum.

Cure Support er hollenskt fyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu á hágæðabætiefnum. Fyrirtækið er með sína eigin framleiðslu þar sem helsta áherslan er á frásog bætiefna í líkama okkar. Þessi háþróaða tækni hefur verið að þróast í tvo áratugi og ekki að ástæðulausu þar sem vörur unnar með þessari tækni hafa slegið í gegn víða um heim. Aðalmarkmið Cure Support er að útbúa áhrifarík bætiefni sem veita þér hámarksvirkni og góða líðan með svokallaðri liposomal-tækni.

C-vítamín – Gegnir fjölda mikilvægra hlutverka í líkama okkar, meðal annars eykur það frásog járns.

Tryggir hámarksnýtingu og upptöku næringarefna

Ásdís Birta Auðunsdóttir er með gráðu í næringarfræði og hefur kynnt sér fyrirtækið Cure Support og liposomal-tæknina afar vel en hún segir okkur hér frá hvernig tæknin virkar og hvaða kosti slík bætiefni hafa umfram önnur bætiefni.

Liposomal eru örlitlar kúlulaga loftbólur sem samanstanda af einu eða fleiri fosfólípíðum sem eru náttúruleg lípíð eða fita. Bætiefni sem unnin eru með liposomal-tækni eru umlukin tvöfaldri fituhimnu sem verndar og eykur upptöku í meltingarvegi en tæknin gerir það að verkum að bætiefnið virkar þannig hraðar og betur ásamt því að líkaminn á auðveldara með að nýta næringarefnin.

Tæknin hefur að auki þá eiginleika að verja næringarefnin fyrir til dæmis ensímum, magasýrum og öðru sem fyrirfinnst í meltingarkerfinu sem gerir það að verkum að næringarefnin skila sér betur til frumna og vefja og kemur þannig í veg fyrir að stærri skammtar af vítamínum valdi óþægindum eða truflunum í meltingarvegi.

Með slíkum hætti verður upptakan mun skilvirkari og tryggir tæknin hámarksnýtingu og upptöku næringarefnanna í líkamanum. Bætiefni sem unnin eru með liposomal-tækni henta því afar vel fyrir þá sem eiga erfitt með upptöku næringarefna af einhverjum ástæðum sem og öllum sem vilja skilvirka og góða upptöku næringarefna.

K2-D3 – einstaklega áhrifarík blanda en saman stuðla þessi næringarefni að því að kalk frásogist úr blóðinu og skili sér til beina.

Hylkin eru unnin með einkaleyfisvarinni Aktin-tækni

Cure Support hefur framleitt magnesíum með liposomal-tækni sem er einstaklega áhrifarík leið til þess að fá daglegan skammt af þessu mikilvæga steinefni. Varan er í fljótandi formi sem gerir það að verkum að steinefnið skilar sér beint út blóðrásina og tryggir þannig hámarksupptöku. Cure Support hefur að auki þróað sérlega áhugaverða aðferð sem kallast Aktin-tækni þar sem liposomaltæknin er notuð til þess að útbúa hylki.

Cure Support er með einkaleyfi á Aktin-aðferðinni. Rannsóknir hafa sýnt fram á að hylki, sem framleidd eru með Aktin-tækni þar sem liposomal-tæknin er notuð, frásogast betur samanborið við önnur sambærileg bætiefni í hylkjaformi. Cure Support hefur þróað aðferðina til fjölda ára en meginmarkmið með að nota þessa aðferð er að ná hágæða frásogi og upptöku næringarefna í líkamanum.

D3 – Stuðlar meðal annars að viðhaldi eðlilegra beina og tanna.

Frábært vöruúrval Cure Support

Cure Support býður upp á frábært úrval af öflugum vörum sem framleiddar eru með Aktin-tækni. Vörulínan inniheldur fyrst og fremst Magnesíum sem unnið er með liposomal-tækni og fimm vörur til viðbótar þar sem unnið er með Aktin-tæknina. Aktin-vörulínan inniheldur D3-vítamín sem stuðlar meðal annars að viðhaldi eðlilegra beina og tanna. K2 + D3-vítamínblandan er einstaklega áhrifarík en samvirkni K2 og D-vítamíns er gríðarlega mikilvæg fyrir mannslíkamann en saman tryggja þessi næringarefni að kalk frásogist úr blóðinu og skili sér til beinanna þar sem það bætir beinþéttni.

Q10 – tekur þátt í því að vinna orku úr fæðuefnum í grunnefnaskiptum frumnanna. Q10 er einnig öflugt andoxunarefni.

Að auki býður Cure Support upp á B12-vítamín sem stuðlar meðal annars að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og er afar mikilvægt fyrir myndun rauðu blóðkornanna sem sjá um að flytja súrefni um líkama okkar, sem og C-vítamínhylki en C-vítamín gegnir fjölda mikilvægra hlutverka í líkama okkar svo sem að auka frásog járns.

Síðast en ekki síst fást Q10 hylki í vörulínu Cure Support en Q10 hefur lengi verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína fyrir mannslíkamann en meðal annars tekur það þátt í að vinna orku úr fæðuefnum í grunnefnaskiptum frumnanna ásamt því að vera öflugt andoxunarefni.

C-vítamín – Gegnir fjölda mikilvægra hlutverka í líkama okkar, meðal annars eykur það frásog járns.

Vörulína Cure Support inniheldur eitthvað fyrir alla:

  • Vegan
  • Enginn sykur
  • Ekkert glúten
  • Engin gerviefni
  • Hraðari upptaka – Betri virkni
Cure Support
play-sharp-fill

Cure Support

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum
Hide picture