fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Rafmögnuð hátíð – loksins!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Fimmtudaginn 10. júní 2021 15:19

Við þetta skemmtilega tilefni skelltu nokkrir starfsmenn Heklu sér í leikandi létta myndartöku þar sem þau fögnuðu góðu gengi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rafmögnuð sumarhátíð Heklu verður haldin laugardaginn 12. júní með pompi og prakt. Áhersla verður lögð á rafmagnsbíla en Hekla er í öðru sæti í sölu rafmagnsbíla á árinu.

Á boðstólnum verður gómsætar pylsur frá Bæjarins bestu og rjúkandi kaffi frá Kaffitár. Veltibíllinn verður á staðnum og Blaðrarinn kíkir við.

Bílar ársins
Hekla fagnaði stórsigri á dögunum þegar Volkswagen ID.4 var valinn bíll ársins af íslenskum bílablaðamönnum. Hekla fór heim með fjögur verðlaun í farteskinu þegar íslenskir bílablaðamenn tilkynntu á val sitt á bíl ársins í tuttugasta sinn.

Volkswagen ID.3 var í fyrsta og þriðja sæti hjá íslenskum bílablaðamönnum.

Í efstu þremur sætunum um titilinn í ár voru í fyrsta sæti er Volkswagen ID.4, í öðru er Skoda Enyaq og í því þriðja er Volkswagen ID.3. Þar að auki var Volkswagen ID.3 í efsta sæti í flokknum stærri fólksbílar og Volkswagen ID.4 í efsta sæti í flokknum smærri jeppar og jepplingar þar sem Skoda Enyaq var í öðru sæti.

Um helgina verður fjórhjóladrifinn ID.4 GTX frumsýndur sem er þá orðinn enn betri fyrir íslenskar aðstæður.

„Það frábært að sjá hve vel hefur verið tekið í nýju rafbílalínur frá Volkswagen og Skoda sem sýnir að vörumerkin eru að gera þetta af heilum hug. Þessi glæsti árangur hefur náðst með því að hanna rafbíla frá grunni sem gerir þeim kleift að nýta plássið betur og tryggja enn betri akstursupplifun. Til að mynda að með nýrri tækni og breyttri þyngdardreifingu reynast afturhjóladrifnu bílarnir mjög vel. Um helgina verður fjórhjóladrifinn ID.4 GTX frumsýndur sem er þá orðinn enn betri fyrir íslenskar aðstæður. Á sama tíma hefjum við forsölu á fjórhjóladrifnum Skoda Enyaq svo það verður nóg um að vera. Okkur hlakkar mikið til að halda loksins veislu og hvetjum sem flesta til að líta við, nóg er plássið hjá okkur og við biðjum fólk að virða fjarlægðamörk,“ segir Jóhann Ingi Magnússon vörumerkjastjóri hjá Heklu.

Rafmagnsbílar vinsælir
Einkar áhugavert er að í öllum tilvikum eru bílarnir sem komust í úrslit frá Heklu rafmagnsbílar með drægni yfir þrjú hundruð kílómetra skv. WLTP. Þetta sýnir hve vinsælir rafmagnsbílar eru og hve vel við Íslendingar erum opin fyrir vistvænum orkuskiptum.

Skoda er að vinna sig hratt upp vistvænu listana eftir að Skoda Enyaq fór að berast til landsins.

Fjórhjóladrifinn Volkswagen ID.4 GTX verður frumsýndur við þetta skemmtilega tilefni en á sama tíma hefst forsala á fjórhjóladrifnum Skoda Enyaq.

Þegar horft er á skráningartölur nýrra bíla eftir fyrstu fimm mánuði ársins er Hekla með 21% af sölu vistvænna bíla á Íslandi. Þegar horft er á vörumerki Heklu er Volkswagen í öðru sæti í sölu rafmagnsbíla, Mitsubishi í efsta sæti í sölu tengiltvinnbíla og Skoda er að vinna sig hratt upp vistvænu listana eftir að Skoda Enyaq fór að berast til landsins. Audi bætir við sig í hlutdeild í sölu rafmagns- og tengiltvinnbíla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum