Nú er svo sannarlega tækifærið til að gera smá dæld í jólagjafalistann, en í dag og á morgun er Svartur föstudagur í Byggt og búið og valdar vörur á 20-62% afslætti! Hér eru nokkur frábær dæmi:
Roomba ryksuguvélmenni frá iRobot á 36% afslætti
Gefðu léttari þrif á nýju ári! Roomba 675 frá iRobot er með öflugu AeroVac hreinsikerfi og vinnur með skynjurum til að bregðast við umhverfinu. Þú stjórnar og skipuleggur þrifin með iRobot HOME appinu og lætur svo vélmennið sjá um rest. Og ekki gleyma að gefa þessu nýja gæludýri nafn!
Tilboð: 34.995 kr. // Fullt verð: 54.995 kr.
KitchenAid Classic 45 hrærivél á 20% afslætti
KitchenAid er orðinn staðlaður búnaður inn á hvert heimili. KitchenAid Classic línan er stöðug og endingargóð og er fullkomin fyrir byrjendur. Allir KitchenAid aukahlutirnir ganga á þessar vélar og því lítið mál að skella í heimagert pasta eða kjöt- eða grænmetisbollur.
Tilboð: 59.995 kr. // Fullt verð: 74.995 kr.
Þráðlaust sléttujárn frá OBH á 62% afslætti
Hér er hreinlega sturlað tilboð í gangi! Straight & Go þráðlaust sléttujárn er tilvalið til að grípa með sér, hvort sem það er fyrir stutt ferðalög eða fyrir langan dag á skrifstofunni. Það er hægt að hlaða sléttujárnið með venjulegri USB snúru og það endist í allt að 35 mínútur á einni hleðslu. Tryggir að góði hárdagurinn endist allan daginn!
Tilboð: 4.995 kr. // Fullt verð: 12.995 kr.
Espresso kaffivél á 31% afslætti
Þú átt einfaldlega skilið gott kaffi eftir þetta ár. LatteGo kaffivélarnar frá Philips eru því góð fjárfesting til að enda árið. Þú getur valið á milli 12 kaffistillinga og vélin sér um að hella upp á fullkominn kaffibolla.
Tilboð: 109.995 kr. // Fullt verð: 159.995 kr.
Fleiri frábær tilboð eru í boði í netverslun Byggt og búið, skoðaðu úrvalið á byggtogbuid.is. Frí heimsending ef pantað er fyrir 10.000 kr eða meira!