fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

HÚÐIN skin clinic: Óumdeilanlegur árangur með laserlyftingu

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 10. maí 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Húðmeðferðarstöðin HÚÐIN skin clinic býður upp á fjölbreyttar húðmeðferðir og faglega þjónustu. Þar starfa dr. Lára G. Sigurðardóttir læknir, Sigríður Arna Sigurðardóttir, hjúkrunar- og förðunarfræðingur, Drífa Ísabella Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur og Esther Helga Ólafsdóttir, móttökuritari og snyrtifræðingur.

„Hjá HÚÐIN skin clinic fögnum við fjölbreytileika og leggjum áherslu á að bæta en ekki breyta náttúrulegu útliti. Undanfarinn áratug hefur orðið mikil vakning um hversu margt er hægt að gera til að auka heilbrigði húðarinnar. Við erum sífellt að auka þekkingu okkar og leggjum áherslu á að vera með nýjungar, bæði í meðferðum og að taka inn nýjar vörur. Við bjóðum einnig upp á einstaklingsbundna ráðgjöf til að aðstoða fólk við val á meðferð. Okkur finnst mikilvægt að taka vel á móti viðskiptavinum þannig að þeir slaki vel á hjá okkur og bjóða upp á meðferðir sem sýnt hefur verið fram á að skili tilætluðum árangri,“ segir Lára.


Laser fyrir framtíðina

Fljótlega eftir 25 ára aldur byrjar kollagen að minnka í húðinni um 1% á ári en kollagen er það sem gefur húðinni styrk og heldur henni unglegri. Á fyrstu fimm árum tíðahvarfa konunnar minnkar kollagenframleiðsla enn hraðar, eða um 30%. „Húðin er eins og vöðvarnir okkar að því leyti að líkt og við förum í leikfimi til að styrkja vöðvana þá er hægt að byggja upp húðina með ýmsum leiðum. Öflugasta meðferðin til að hægja á öldrunarferlinu er laserlyfting sem er oft þekkt sem andlitslyfting án skurðaðgerðar. Laserlyfting er vísindalega viðurkennd meðferð og sýna rannsóknir ótvíræðan árangur. Meðferðin örvar nýmyndun kollagens og elastíns í húðinni, jafnar áferð, þéttir húðina og fækkar andlitslínum þannig að húðin verður unglegri og heilbrigðari.“

20% afsláttur af laserlyftingu í maí

„Í maí bjóðum við 20% afslátt af laserlyftingu – meðferðinni sem Jennifer Aniston er þekkt fyrir að gangast undir. Við erum annars vegar með þægilega og léttari lasermeðferð sem tekur um 30 mínútur og hægt er að fara beint í vinnu að meðferð lokinni. Laserlyfting með Er:YAG er töluvert öflugri og tekur um fimm til sjö daga fyrir húðina að jafna sig. Hve fljótt árangur kemur fram og hve mikill árangur sést er alltaf einstaklingsbundið, en árangur af laserlyftingu er að koma fram allt að sex mánuðum eftir meðferð. Hver meðferð skilar árangri en oftast er mælt með 3–4 skiptum til að sjá hámarksárangur. Margir koma síðan árlega til að halda sér við.“

Cinderella húðþétting

Þessi vinsæla meðferð eykur þéttni og ljóma í húð og kemur árangur strax fram. Meðferðin byggir á innrauðri tækni sem hefur verið vinsæl í Bandaríkjunum og á Bretlandi. Húðin er hituð upp í ákveðið hitastig í nærinnrauðu ljósi. Meðferðin setur ferli af stað sem örvar frumurnar í framleiðslu á kollageni. „Meðferðin skilar þéttari húð og við mælum sérstaklega með henni fyrir þá sem vilja smá „búst“ fyrir sérstök tilefni.“   

Fyllt upp í djúpar línur með áhrifaríkum hætti

Notkun á Restylane fylliefniefnum til að minnka og fjarlægja djúpar línur í húðinni er ein vinsælasta húðmeðferðin í dag enda algengt að heyra hve úthvíldur maður sé eða líti vel út eftir þessa meðferð.

Restylane, sem er gert úr náttúrulegu rakaefni húðarinnar, er sett rétt undir húðina og við það sléttist úr henni, línur hverfa eða verða minna sýnilegar. Restylane er einnig vinsælt efni til að setja í varir til að gefa þeim meiri fyllingu.

Restylane: Fyrir og eftir. Munurinn er mikill.


Gjafabréf að eigin vali

Gjafabréf í húðmeðferð hafa notið gífurlegra vinsælda undanfarið. „Það er kannski vegna þess að fólki líkar orðið betur að gefa ástvinum sínum upplifun eða vellíðan frekar en að auka á hið sístækkandi safn hluta sem fólk sankar að sér,“ segir Lára.

Á vandaðri heimasíðu Húðarinnar hudin.is er að finna ítarlegar upplýsingar um allar meðferðir.

Facebook: Húðin

Instagram: Húðin.is

Einnig eru veittar upplýsingar í síma 519-3223.

HÚÐIN skin clinic er í Hátúni 6b, 105 Reykjavík.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum