fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

„Íslenskar konur eru skvísur fram eftir öllum aldri“

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 9. mars 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum með föt fyrir konur frá aldrinum um 25 ára og alveg upp úr. Það er nefnilega svo merkilegt að íslenskar konur eru skvísur fram eftir öllum aldri, þær verða mjög seint gamlar. Hingað kemur ein reglulega, sem er áttræð, og fatar sig upp,“ segir Guðný Kristín Erlingsdóttir, eigandi kvenfataverslunarinnar Stíll, sem hún hefur rekið í 18 ár. Ákveðin þáttaskil urðu í rekstrinum þegar Guðný flutti verslunina af Laugavegi og upp í Síðumúla:

„Við vorum í vissum skilningi frumbyggjar í þessari bylgju nýrra verslana hér síðustu misserin, við komum hingað með þeim fyrstu og margar hafa fylgt í kjölfarið. Okkur líkar rosalega vel hérna og mér finnst þetta vera orðinn nýi miðbærinn. Hér rölta oft um vinkvennahópar, ganga Síðumúlann og Ármúlann og kíkja í verslanir. Eftir að við fluttum hingað gátum við líka stækkað verslunina og aukið úrvalið, sem var mjög jákvætt,“ segir Guðný.

Gæði á hagstæðu verði

Stíll leggur áherslu á gæðavörur á hagstæðu verði. „Við svona rétt löfum í meðalverði, erum ekki með ódýrustu fötin í bænum en erum langt fyrir neðan þau dýrustu. Við leggjum mikla áherslu á gæðin og ég vil fullyrða að hér fá konur mjög góð föt á sanngjörnu verði. Það hefur líka hjálpað okkur að föt hafa almennt lækkað í verði, líka í innkaupum, og 15% tollaniðurfelling á innfluttum fatnaði sem átti sér stað fyrir þremur árum hefur skilað sér beint inn í verðlagið hjá okkur.“

Stíll býður upp á klassísk föt sem henta konum á öllum aldri, í bland við tískusveiflur: „Við erum með mikið úrval af buxum og kjólum í klassískum sniðum en síðan líka flíkur á borð við leggings-buxur og rifnar gallabuxur. Við erum líka með vítt stærðaval, frá 36 upp í 46, en ekki beinlínis yfirstærðir.“

 

Stíll leggur áherslu á góða þjónustu og ráðgjöf, léttan anda og að viðskiptavinum líði vel í versluninni. Að sögn Guðnýjar er mikil vinna að reka góða fataverslun og þetta sé bara starf fyrir þá sem vilja vera í því af lífi og sál: „Þó að ég hafi verið í þessum rekstri í 18 ár er ég alltaf jafnt spennt þegar það koma nýjar vörusendingar. Þetta er svo skemmtilegt.“

Hundurinn Hódor (eftir persónu úr Game of Thrones) er einstakur karakter og setur skemmtilegan svip á verslunina.

Gjafabréf í Stíl er klárlega góð tækifærisgjöf en Guðný bendir eiginmönnum líka á að skoða Facebook-síðuna www.facebook.com/stillfashion.is/ því þar birta konur oft góðar ábendingar til eiginmanna sinna um gjafir.

Stíll er til húsa að Síðumúla 34 og er opin virka daga frá kl. 11 til 18 og laugardaga frá kl 11 til 16. Símanúmer er 551-4884.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum