fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Fitlife: Aldrei jafn auðvelt að koma sér í form með einkaþjálfarann í snjallsímanum!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 3. september 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fitlife er hugarfóstur Amöndu Marie Ágústsdóttur sem hefur starfað sem þjálfari í sjö ár og einkaþjálfari í fjögur ár. „Ég vinn sem einkaþjálfari hjá World Class og Fitlife er framlenging á því starfi. Það hentar ekki öllum að mæta á fyrirfram ákveðnum tíma í ræktina og hafa einhvern standandi yfir sér á meðan þeir svitna og púla. Mörgum hentar miklu frekar að fá prógramm í símann þar sem þeir geta hreyft sig á sínum forsendum og á sínum tíma. Auk þess hentar ræktarumhverfið ekki öllum og margir vilja gera æfingarnar heima hjá sér eða úti. Þess vegna fannst mér tilvalið að bjóða upp á þessa þjónustu til þess að geta hjálpað sem flestum,“ segir Amanda.

Amanda er stjörnum prýddur einkaþjálfari með gífurlega reynslu, bæði af því að þjálfa sjálf og þjálfa aðra. „Ég kláraði einkaþjálfaranám hjá NASM, fékk þjálfararéttindi hjá IRONMAN og fyrsta stig sem þríþrautarþjálfari hjá International Triathlon Union. Ég hef alltaf verið í keppnisíþróttum og í dag keppi ég í þríþraut. Í fyrra keppti ég á elite-stigi í ólympískum vegalengdum en í ár hef ég verið að snúa mér alfarið að IRONMAN vegalengdum.“

Hvort sem þú vilt styrkjast, bæta úthald að lækka fituprósentuna þá veit Amanda hvað þarf til að ná árangri.

Markmiðið er að þú náir þínum markmiðum

Amanda hefur hjálpað þónokkuð mörgum einstaklingum að ná markmiðum sínum gegnum Fitlife. „Ég varast að taka við fleirum en ég hef tök á, því ég vil alltaf geta boðið upp á topp þjónustu. Markmið mitt er ávallt að viðskiptavinurinn nái sínu markmiði og það er það besta sem ég veit, þegar það gerist. Margir hafa neikvæðar tilfinningar gagnvart ræktinni eða hreyfingu en ég vil hjálpa fólki að mynda heilbrigt samband við æfingar og mat. Það er ómetanleg tilfinning að kenna fólki að njóta þess að hreyfa sig.“

 

Umsagnir frá viðskiptavinum Amöndu tala sínu máli

„Annað slagið á lífsleiðinni verður maður þeirrar gæfu aðnjótandi að hitta fólk sem breytir lífi manns til betri vegar svo um munar. Eftir margra ára kyrrsetulíf og nokkrar misheppnaðar tilraunir til virkari lífsstíls, þá reyndist það einmitt slíkt gæfuspor fyrir mig að fara í einkaþjálfun til Amöndu. Hún býr ekki einungis yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu af þjálfun og keppni, heldur er hún líka sérstaklega viðkunnanleg manneskja, og alveg einstök fyrirmynd. Það eitt að umgangast hana og fá innsýn í hennar þjálfun fyllir mann af eldmóð sem fær mann til að vilja leggja harðar að sér. Með vel útfærðu hlaupa- og styrktarprógrammi hefur hún vísað mér veginn að betra lífi. Nú 10 mánuðum og 25 töpuðum kílóum síðar (án megrunarkúrs), þá er ég í einu besta líkamlega formi lífs míns, hleyp hálfmaraþon og aðrar vegalengdir á betri tíma en þegar ég var ungur maður, og lifi bæði virkum og heilbrigðum lífsstíl. Ég kann ákaflega vel við þennan „nýja mig“ og ætla að leyfa honum að njóta sín áfram um ókomna tíð. Takk fyrir mig Amanda, ég hefði ekki getað gert þetta án þín!“ – Yngvi Björnsson

„Ég er ótrúlega ánægð með fjarþjálfunina hjá Amöndu. Æfingarnar eru mjög krefjandi og ég er sífellt að fara út fyrir þægindarammann minn sem er einmitt það sem ég þurfti. Appið sem hún notar er líka frábært og hún er dugleg að senda manni og athuga hvernig gengur. Ég mæli hiklaust með henni!“ – Sara Petra

 

Fitlife: Snjöll leið til að ná markmiðunum

Ferlið er sáraeinfalt, enda á það að vera einfalt og skemmtilegt að koma sér í form.

„Fitlife byggist á snjallforriti fyrir iPhone- og Android-síma, þar sem þú færð sérsniðið prógramm með æfingaplani og matarplani. Ef þig vantar aðstoð við æfingarnar, ráðleggingar eða hvatningu þá nærðu alltaf í mig í gegnum skilaboð, hvort sem er í tölvunni eða símanum.“

  1. Þú skráir þig hjá Fitlife og hleður niður Fitlife-snjallforritinu.
  2. Þú svarar spurningalista og út frá þínum svörum sníður Amanda persónulegt æfingaplan fyrir þig. Einnig færðu sérsniðið matarplan.
  3. Þú byrjar að hreyfa þig og getur fylgst með árangrinum í snjallforritinu.

Snjallforritið sýnir þér myndbönd sem kenna nákvæmlega hvernig á að gera hverja æfingu fyrir sig. Þú skráir niður árangur og framfarir í appið. Þú getur líka hlaðið inn myndum til að fylgjast með árangrinum. Í forritinu er matarplan gert af næringarfræðingi sem hjálpar þér að halda utan um mataræðið. Matarplönin eru brotin uppí „macros“. Hægt að hafa plönin keto, vegan, vegetarian, holistic, gluten free, low glycemic, no lactose, balanced og fleiri útgáfur. Fitlife mætir þér þar sem þú ert og hentar þeim markmiðum sem þú vilt setja þér.

Það er mjög misjafnt hvað viðskiptavinir stoppa lengi hjá Amöndu og Fitlife. „Ég er með þónokkra sem hafa verið hjá mér frá alveg því ég byrjaði að þjálfa. Einnig eru nokkrir sem eru hjá mér í einhvern tíma, taka sér þá pásu og æfa sjálfir. Oft koma þeir aftur til mín til þess að ná betri árangri. Svo eru alltaf einhverjir sem koma til mín í 1–3 mánuði rétt til þess að koma sér af stað í ræktinni. Þetta er mjög persónubundið og einkaþjálfun, hvort sem hún gerist á staðnum eða í gegnum símann, byggist alltaf á sambandinu við viðskiptavininn og því að hvetja hann í áttina að markmiðum sínum,“ segir Amanda.

 

Nánari upplýsingar á fitlife.is

Fylgstu með á Facebook: FitLife Einkaþjálfun – Amanda Marie

Instagram: Amanda m agustsdottir

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum