fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Fartölvur fyrir þig, mig og alla hina

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 12. júlí 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú fer að koma sá tími þegar fólk fer að huga að nýjum verkefnum, hvort sem það er nýtt skólaár, ný áhugamál eða aukin verkefni í vinnunni. Í Tölvulistanum fæst mikið úrval af fartölvum, allt frá nettum tölvum fyrir almenna notkun, til kraftmikilla fartölva fyrir hönnuðinn eða leikjaspilarann.

Hér koma okkar tillögur sem uppfylla mismunandi þarfir og kröfur.

Fyrir skólann

Acer Aspire 3. Fyrir skólann.

Acer Aspire 3 fartölvan er byggð á öflugri grundvallartækni sem tryggir afköst. Hún er öflug miðað við verðmiða og hentar vel fyrir skóla, vinnu eða kröfuminni leiki. Skjárinn er Full-HD, sem þýðir tæra og skýra mynd og Acer BlueLightShield-tæknin eykur þægindi við notkun og minnkar álag og þreytu í augum. Þessi fartölva hentar því einstaklega vel fólki sem eyðir löngum tíma fyrir framan tölvuna, hvort sem það er við verkefnavinnu eða áhorf.

 

Fyrir vinnuna

Asus Zenbook Pro 14. Fyrir vinnuna.

Fyrir þá sem vilja vinna með þyngri forrit, jafnvel við hönnun eða þurfa að halda mörgum boltum á lofti samtímis hentar Asus Zenbook Pro 14 einstaklega vel. Hún er byggð til ljúka verkefnum fljótt og skilvirkt og er með hágæða örgjörva, afar hraðvirka gagnageymslu og skjákort í leikjastaðli. Tölvan er lauflétt og meðfærileg með örþunnri hönnun og 13,3 tommu skjá. Þetta er fartölva sem hentar vel þeim sem vinna við breytilegar aðstæður og þurfa að flakka með vinnugögnin með sér.

Fyrir ferðalanginn

Fyrir fólk sem er mikið á ferðinni, hvort sem það er vegna vinnu eða ferðalaga, þá er Acer Swift 1 mjög nett og hentar vel fyrir léttari verkefni. Vélin er hönnuð með lúxus í huga og því er hún í fallegri álskel og með 14 tommu Full-HD skjá með IPS-tækni. Gott úrval tengja og rafhlaða sem endist í allt að 17 klukkustundir gera Acer Swift 1 eintaklega hentuga til að grípa með í ferðalagið. Einnig er fingrafaralesari á vélinni, fyrir aukið öryggi.

 

Fyrir hönnuðinn

VivoBook 15. Fyrir hönnuðinn.

VivoBook 15 er nett fartölva en ótrúlega öflug, tilvalin fyrir kröfuharðari notendur. Hún inniheldur 8. kynslóð af Intel i5 örgjörva og skilar því af sér miklum afköstum þrátt fyrir mjög litla orkunotkun. Vélin er með 4 gb DDR4 vinnsluminni, sem hægt er að stækka í allt að 16 gb, og því keyrir vélin forrit á borð við Excel, Photoshop og Visual Studio hratt og örugglega. Mikið úrval tengja, þar á meðal USB-C tengi, gerir það auðveldara og fljótlegra að deila myndum, tónlist og myndböndum á milli tækja.

 

Fyrir leikjaspilarann

Acer Nitro 5. Fyrir leikjaspilarann.

Acer Nitro 5 uppfyllir allar helstu kröfur leikjaspilarans. NVIDIA skjákort og öflugur örgjörvi tryggja mjúka og háhraðaspilun. Acer TrueHarmony hátalarar gera upplifunina enn raunverulegri og Full-HD skjár með IPS-tækni skerpir á litum og gæðum, jafnvel þegar horft er frá hlið. Að auki gefa Acer NitroSense og CoolBoost-tæknin notandanum enn meiri stjórn á búnaðinum og sjá til þess að kæla vélina og tryggja hámarksafköst.

 

Ofur hröð –  Ofur smá – Ofur öflug

Ofur hröð – Ofur smá – Ofur öflug Raxer Blade 15.

Svo er Razer Blade 15 Advanced Model alveg ofur. Ofur hröð. Ofur smá. Ofur öflug. Hún er aðeins 17,8 mm þykk en með 15,6 tommu edge-to-edge 144Hz skjá, svo myndbönd og leikir verða einstaklega skýr. Þessi tölva hefur hlotið Editors‘ Choice viðurkenningar sem leikjatölva frá Digital Trends, Laptop Mag og PCMAG.com. Enda ekki furða, því vélin er með Intel Core i7 örgjörva með 6 kjörnum og 16 gb DDR4 vinnsluminni, ásamt svo mörgum öðrum eiginleikum sem hefja leikjaupplifunina upp á enn hærra stig.

Úrvalið er ótrúlegt í Tölvulistanum og allir ættu að geta fundið fartölvu við hæfi. Ef þú ert í einhverjum vafa getur þú kíkt við í næstu verslun Tölvulistans eða sent tölvupóst á sala@tl.is til að fá frekari ráðgjöf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum