fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Kynning

Hótel Kjarnalundur: Rómantísk og heillandi náttúruperla

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 30. mars 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hótel Kjarnalundur er sannkölluð náttúruparadís, en þetta fallega hótel er staðsett inni í Kjarnaskógi á Akureyri, höfuðborg Norðurlands. „Áhersla okkar er að bjóða gestunum upp á notalegt og afslappað umhverfi með einstakri aðstöðu fyrir útiveru, heilsu og vellíðan. Hér er auðvelt að endurnærast í snertingu við náttúrna,“ segir Hildur.

Heillandi skógur

Kjarnaskógur er uppáhaldsskógur allra Akureyringa og það er ekki að ástæðulausu. Skógurinn býður upp á fallegar gönguleiðir og skemmtileg útisvæði fyrir alla fjölskylduna, jafnt unga sem aldna. Svo er hann líka steinsnar frá heillandi miðbæ Akureyrar þar sem finna má fjöldann allan af kaffihúsum, veitingastöðum, verslunum, söfnum og setrum.

Í Kjarnaskógi rétt fyrir ofan hótelið er einnig hægt að finna blakvöll, leiksvæði og sérhannaða fjallahjólaleið. Á veturna er svo slóð troðin fyrir skíðafólk. Því ættu allir að geta fundið sér afþreyingu við hæfi.

 

Ótal gistimöguleikar

Hótelið er með 66 herbergi og býður upp á ótal gistimöguleika, allt frá einstaklingsherbergjum, hefðbundnum hjónaherbergjum og lúxus hjónaherbergjum til fjölskyldusvítu. Einnig er hótelið með til leigu glæsilegt heilsárshús með heitum potti. Við erum með veitinga- og fundarsali með frábæru útsýni yfir fjörðinn. Sali sem henta vel til funda, en eru auk þess hentugir fyrir árshátíðir og aðrar veislur.

Fylgstu með norðurljósunum úr heita pottinum

„Við erum með heitan pott úti í skóginum þar sem gott er að láta líða úr sér eftir viðburðaríkan dag í miðbæ Akureyrar eða eftir góða göngu á svæðinu í kring.

Úr heita pottinum okkar er oft hægt að hitta fyrir feimin norðurljós, en engin ljósmengun er við pottinn og því sjást þau vel þaðan. Við bjóðum upp á einstakt heilnudd fyrir alla. Hægt er að panta tíma í nudd í móttökunni. Einnig erum við með infrarauðan sánaklefa.“

Hótel Kjarnalundur, 600 Akureyri

Sími: 460-0060

Netpóstur: info@kjarnalundur.is

Bókaðu gistingu á kjarnalundur.is

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7