fbpx
Mánudagur 16.júní 2025
FókusKynning

5 hlutir sem alþingismenn ættu að fá frítt

Ritstjórn DV
Laugardaginn 24. febrúar 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingmenn fá greiddan aksturskostnað, húsnæðiskostnað, síma, tölvu, blóm og flug. Í dag er greint frá því að þingmenn fái hótelgistingu og fæði og jafnvel vínglas þegar vel liggur á þeim frá skattgreiðendum. DV ákvað að taka saman fimm hluti sem þingmenn ættu að fá frítt.

Vikuleg pítsuveisla

Þingmenn ættu að fá vikulega pítsuveislu frá Gömlu smiðjunni í Lækjargötu og ársbirgðir af Ís cola til að skola pítsunum niður.

Fótanuddtæki

Allir þingmenn ættu að fá danska fótanuddtækið Clairol Foot Spa sem er til sölu í Radíóbúðinni í Reykjavík á aðeins 2.600 krónur.

Gjafakort í Miklagarð

Allir þingmenn ættu að fá gjafakort með inneign að allt að fimm hundruð þúsundum í Miklagarði, stærstu verslun landsins. Þar er Lögurinn á kostakjörum og fiskborðið er alltaf vinsælt. Við bendum þingmönnum á að gleyma ekki að kippa með sér Frískamín.

Skór frá Sævari Karli

Fyrst þingmenn fá borgað fyrir að keyra þá hljóta þeir að fá borgað fyrir að ganga, það segir sig sjálft. Þingmenn sem ganga meira en 15 þúsund kílómetra á ári yrðu svo skyldaðir til að taka skó á leigu.

Frítt flug í fríinu

Þingmenn fá að vísu frítt flug innanlands og líka erlendis ef þeir eru að ferðast vegna þingstarfa. Það er samt sem áður nauðsynlegt að fá einnig frítt flug til að ferðast í frístundum. Það væri því við hæfi að þingmenn fengju gjafabréf aðra leið út í heim með Arnarflugi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7