fbpx
Föstudagur 16.maí 2025
FókusKynning

Kaffihúsið sem alltaf vantaði í Breiðholtið

Kynning

Gamla kaffihúsið, Drafnarfelli 18, 111 Reykjavík

Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 11. apríl 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gamla kaffihúsið er hlýlegur staður í Drafnarfelli í Breiðholti. Unnur Arna Sigurðardóttir, einn eigenda þess, er ákaflega ánægð með frábærar móttökur viðskiptavina. „Það var brýn þörf á að fá gott kaffihús í hverfið hér sem er rótgróið og rólegt svæði. Hér býr margt fólk og alls ekki allir sem vilja fara niður í bæ til þess að fá sér góðan kaffibolla og finnst notalegt að setjast inn hjá okkur,“ segir hún. „Það hefur vakið mikla lukku að við bjóðum einnig upp á mat og við erum t.d. alltaf með tvær mismunandi gerðir af súpum í hádeginu og rétt dagsins. Þannig að það má segja að við séum nokkurs konar bistró. Hádegismatartíminn stendur yfir frá kl. 12.00–14.00.“

Kaffið kætir kroppinn og sálina
Kaffið kætir kroppinn og sálina

Ljúffengar steikur

Unnur segir að matseðillinn sé ekki stór, en sætur og með sérvöldum, bragðgóðum réttum. „Gestir hafa verið afar hrifnir af eðalbrauðunum okkar en þau er tvisvar sinnum stærri en hefðbundin rúnstykki og fyllt með laxi, kjúklingasalati eða mínútusteik. Allan daginn eru síðan á boðstólum ljúffengar steikur; nautasteik með bearnaise- eða piparsósu og fær fólk sér þá gjarnan rauðvínsglas með máltíðinni og röltir svo satt og sátt heim til sín, í göngufæri. Gamla kaffihúsið okkar er heimilislegt og fólki finnst þægilegt að setjast hér niður og lesa eða spjalla við vinalegan þjóninn. Við erum með bókahillu sem fólk getur seilst í og fundið sér lesefni. Fólk getur bæði tekið bækur og gefið þær sem það hefur lesið og vill að aðrir njóti.“

Nýbakað brauð og fínerí
Nýbakað brauð og fínerí

Kökuhlaðborð á sunnudögum

„Á sunnudögum er alltaf kökuhlaðborð hjá okkur upp á gamla móðinn á milli kl. 15.00–17.00 en það kostar aðeins 2.000 krónur og er kaffi þá innifalið. Þetta er nokkuð sem fólk hefur saknað og þykir dásamlegt að geta tekið upp þennan skemmtilega gamla sið að fara í kaffihlaðborð á sunnudagseftirmiðdögum,“ segir Unnur og brosir hlýlega um leið og hún kemur því á framfæri að hún þakki innilega fyrir frábærar móttökur gesta.

Glæsilegt kaffihús
Glæsilegt kaffihús

Gamla kaffihúsið, Drafnarfelli 18, 111 Reykjavík.
Sími: 511-1180
Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðu Gamla kaffihússins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea