fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
FókusKynning

Þess vegna ættirðu aldrei að borða mat sem fluga hefur komist í snertingu við

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 27. nóvember 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú ert að gera þig reiðubúinn til að borða þessa girnilegu samloku fyrir framan þig. Skyndilega sérðu flugu sveima yfir matnum, hún lendir á samlokunni en flýgur svo á brott jafn skjótt og hún kom. Líklega læturðu þig hafa það að borða samlokuna, ekki satt?

Samkvæmt nýrri rannsókn vísindamanna við Pennsylvania State University í Bandaríkjunum, Nanyang Technological University í Singapúr og Federal University í Rio de Janeiro í Brasilíu, ætti fólk alls ekki að borða mat sem fluga hefur komist í snertingu við. Flugur bera nefnilega með sér fleiri sjúkdóma og pestar en okkur hafði grunað.

Vísindamennirnir skoðuðu örveruflóru 116 flugna af tegund maðka- og húsflugna um víða veröld. Samkvæmt niðurstöðunum má finna nokkur hundruð tegundir af bakteríum á löppum og vængjum meðalflugunnar, stundum minna en stundum meira. Þessar flugur hafa stundum komist í snertingu við allskonar ófögnuð; saur, hræ af dýrum eða úrgang af einhverju tagi.

Bakteríur sem flugurnar taka með sér eiga svo auðvelt með að smitast á annað yfirborð, til dæmis mat. Í niðurstöðum vísindamannanna kemur fram að flugur séu einskonar loftskutlur fyrir bakteríur og í raun hið fullkomna farartæki fyrir bakteríur að dreifa úr sér.

Ein tegund bakteríu sem vísindamennirnir fundu heitir Helicobacter pylori, sem getur valdið magabólgum og magasári. Það hversu mikið magn baktería er að finna á flugum fer að nokkru leyti eftir því umhverfi sem þær dvelja í; þannig voru að jafnaði fleiri skaðlegar bakteríur á flugum sem veiddar voru í borgum en flugum sem veiddar voru á strjálbýlum svæðum.

Lærdómurinn af þessari rannsókn er samt sá að húsflugur eru ekki eins saklausar og margir halda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7