fbpx
Sunnudagur 16.nóvember 2025
FókusKynning

T – Bone: Kolagrillaðar steikur í aðalhlutverki

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 22. júlí 2016 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

T-Bone steikhús er metnaðarfullur veitingastaður við Ráðhústorgið í hjarta Akureyrar. Þar eru allar steikur grillaðar á kolagrilli sem gefur einstakt bragð. Á matseðlinum eru margar tegundir af steikum í boði; mismunandi vöðvar og þyngd. Reynt er að hafa eitthvað fyrir alla – þótt steikurnar séu í aðalhlutverki. Sem dæmi um steikur má nefna nautalundir, bæði 200 gramma og 300 gramma, rib-eye 250 gramma og 350 gramma, lambalundir og BBQ grísarif, að ógleymdri 800 gramma Porterhouse-steikinni sem er frábær!

Vinsælasta steikin er klárlega t-bone steikin (400 g) en það er lund og fillet á beini. Þetta er flott og bragðmikil steik sem okkur þykir best að steikja medium rare. Meðlætið er hefðbundið, t.d. bökuð kartafla með kryddsmjöri, grillaður maísstöngull, hvítlauksristaðir sveppir og fleira góðgæti.

Mælum með ,,Uppáhaldi grillarans”

T-Bone steikhús býður upp á hádegis- og kvöldmatseðil. Hádegisseðillinn er aðeins léttari og á kvöldin er seðillinn fjölbreyttari og þá er hægt að velja svokallað „Uppáhald grillarans“ sem matreiðslumenn okkar hafa sett saman. Einnig geta viðskiptavinirnir valið steik, meðlæti og sósu að eigin ósk.

T-Bone steikhús leggur áherslu á að veita persónulega þjónustu, vera með gott verð og besta mögulega hráefni í þægilegu og flottu umhverfi.

Verið velkomin á T-Bone steikhús, hlökkum til að sjá ykkur!
T-Bone steikhús
Brekkugötu 3, 600 Akureyri
Sími 469-4020.

www.tbone.is
www.facebook.com/tbonesteikhus

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.01.2025

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina
Kynning
09.01.2025

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla
Kynning
23.10.2024

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq