fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
FókusKynning

Notendur verða háðir hljóðbókaspilurunum

Kynning

Örtækni, Hátúni 10c

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 5. október 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Örtækni á sér langa sögu, var stofnað árið 1976 og er sjálfstætt fyrirtæki í eigu Öryrkjabandalags Íslands. Í upphafi var Örtækni meðal annars í samstarfi við Háskóla Íslands í þróun og framleiðslu á tölvuvogum fyrir fiskiskip. Seinna var fyrirtækið Marel stofnaði í kringum þá framleiðslu.

Tengivörur fyrir fagfólk

Upp úr 1990 hóf fyrirtækið framleiðslu á tölvuköplum og tengibúnaði fyrir tölvur. Síðan þá hafa tölvukaplar og tengihlutir fyrir tölvur í hæsta gæðaflokki verið flaggskip starfseminnar, enda verslar fagfólk mikið við Örtækni.
Markmið fyrirtækisins er tvíþætt. Annars vegar að veita fólki með fötlun tímabundna starfsþjálfun eða vinnu til framtíðar. Hins vegar að þjóna fötluðum með sölu og þjónustu á hjálparbúnaði fyrir fatlaða.

Hljóðbókaspilarar slá í gegn

Ein af þeim vörum sem Örtækni býður er hljóðbókaspilari. „Það má segja að þessi vara hafi slegið í gegn hjá okkur,“ segir Hartmann Kr. Guðmundsson, forstöðumaður tæknivinnustofu Örtækni.
„Blindir og sjónskertir hafa mikil not af spilurunum, en fleiri og fleiri hafa verið að uppgötva þá sér til yndisauka. Eldra fólk hefur í auknum mæli verið að fá sér svona spilara og tilvist þeirra spyrst hratt út,“ segir Hartmann.

Virkar eins og bók

Hann segir að spilararnir virki í raun eins og bók. „Þú byrjar þar sem þú endaðir síðast og þó að fólk sé með fleiri en eina bók í gangi, þá man spilarinn hvar þú varst staddur síðast í hverri þeirra. Þetta virkar eins og bók á pappír. Þú getur flett í henni og sett bókamerki alveg eins og í venjulegri bók.“

Einfaldir og henta eldri

Spilararnir eru framleiddir erlendis, en Örtækni hefur verið í náinni samvinnu við framleiðandann.
„Við höfum komið að þróun spilaranna og lagt áherslu á einfaldleika við notkun þeirra. Þannig er hægt að loka tökkum nema þeim sem spóla áfram og afturábak, spila, stoppa og hljóðstyrk, þannig að þeir sem ekki eru tæknilega flinkir eiga auðvelt með að nota þá. Spilararnir henta því afar vel eldra fólki.“

Samdægurs úr viðgerð

Hljóðbækur eru á ýmsu formi en spilararnir taka jafnt við hljóðbókum á geisladiskum, minniskortum og USB-lyklum og hljómgæðin eru mjög góð. „Við sjáum að eldra fólk sem hefur fengið sér spilara verður gjörsamlega háð honum. „Þá sjaldan sem þarf að þjónusta tækið, þá reynum við að gera það samdægurs, því við finnum að fólk getur ekki án þess verið og verður að fá tækið fyrir kvöldið til að geta hlustað áður en það fer að sofa,“ segir Hartmann og hlær.

Sjá nánar á ortaekni.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7