fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
FókusKynning

Hágæðavörur á miklum afslætti út október

Kynning

Rúmgott, Smiðjuvegi 2, Kópavogi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 4. október 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ein rótgrónasta rúmaverslun landsins, Rúmgott, Smiðjuvegi 2 í Kópavogi, er með útsölu út október þar sem hægt er að fá valdar hágæðavörur á allt að 50% afslætti, til dæmis valdar dýnur, svefnsófa og rúmgafla, en allar vörur eru á að minnsta kosti 20–30% afslætti. Rúmgott á að baki yfir 60 ára sögu og er afar framarlega í hönnun og þróun á rúmdýnum. Útsalan veitir því fólki tækifæri til að eignast einstaklega vandaðar vörur úr þessum flokki á mjög hagstæðu verði.

„Það er 30% afsláttur af öllum rúmum, rafmagnsrúmum og venjulegum rúmum, sem og öllum aukahlutum og „mjúkum“ vörum. Gildir þetta um alla vöruflokka og jafnt ódýrari rúm sem okkar dýrustu og vönduðustu rúm þar sem dýnurnar eru smíðaðar eftir legugreiningu,“ segir Sigmundur Þór Árnason, verslunarstjóri í Rúmgott.

Fyrirtækið starfar á gömlum og traustum grunni en það var stofnað fyrir 64 árum.

„Fyrirtækið hefur hins vegar starfað í þeirri mynd og á þeim stað sem það er rekið í dag í 17 ár, sem sagt við smíðum dýnur úr öllum efnum og eftir legugreiningu, auk þess að selja ódýrari staðlaðar heilsudýnur og venjulegur dýnur,“ segir Sigmundur.

Rúmgott er afar framarlega í þróun, hönnun og framleiðslu á dýnum og er meðlimur í hinum virtu alþjóðlegu samtökum ISPA, sem eru samtök rúmdýnuframleiðenda. Sérstaða Rúmgotts liggur í dýnunum, sem eru „einstaklingsmiðaðar“, að sögn Sigmundar:

„Við leggjum alltaf höfuðáherslu á dýnuna. Við erum dýnuframleiðendur og erum í alþjóðasambandinu ISPA. Við sérsmíðum dýnur eftir legugreiningum úr öllum dýnuefnum. Dýnan er það mikilvægasta í rúminu þó að auðvitað skipti þetta allt máli, botninn líka og þetta þarf að vinna rétt saman. En það eru framleiddar dýnur sem hægt er að sofa á einum saman á gólfinu, en enginn getur sofið á rúmbotni einum og sér. Við erum líka í raun eina fyrirtækið á landinu sem býður upp á allt – þ.e.a.s. pokagorma, latex, Memory Foam, Cold Foam, hefðbundna gorma (springdýnur) og alla þessa kosti – og erum með einstaklingsmiðaða framleiðslu fyrir t.d. fólk sem þolir ekki að sofa á dýnum sem eru smíðaðar bara „einhvern veginn“. Í okkar dýnum erum við með svokallað „twin-kerfi“ þannig að í tvíbreiðum dýnum fær hvor „sinn hluta“ í dýnunni fyrir sínar þarfir varðandi stuðning og stífleika. Dýnan er því þannig gerð að hún henti báðum aðilum sem sofa á henni.“

Rúmgott er sem fyrr segir að Smiðjuvegi 2 í Kópavogi. Opið er frá 10 til 18 virka daga og 11 til 16 á laugardögum. Búast má við því að margir leggi leið sína í verslunina á næstunni á meðan septemberútsalan stendur yfir og geri kjarakaup í rúmum og skyldum vörum. Síminn hjá Rúmgott er 544-2121 og netfang er rumgott@rumgott.is. Heimasíða er rumgott.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7