18 ára fangelsisvist gerði Bandaríkjamanninum Richard Biegenwald greinilega ekkert gott. Eftir að honum var sleppt úr fangelsi árið 1977 myrti hann að minnsta kosti fjórar manneskjur. Tvö fórnarlambanna gróf hann við heimili móður sinnar á Staten Island. Richard lést í prísund árið 2008.